Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður gerir ekki tilraun til að svara því, ekki frekar en aðrir stjórnarliðar, af hverju málið var ekki klárað í janúar, febrúar, mars. Hann fjallar eitthvað um að það hefði verið búið að tala í marga klukkutíma. Það var ekkert farið að reyna á það. Það var bara búið að taka það út úr nefndinni í byrjun desember og ég taldi víst að það yrði sett á dagskrá um leið og þing kæmi saman í janúar. Það var ekki gert, ekki í febrúar, en síðan kom ákvörðun um eitthvað allt annað í byrjun mars, sem er líka áhugavert, vegna þess að hv. þm. Sigurjón Þórðarson er í Flokki fólksins sem hefur annars vegar verið á móti Evrópusambandinu hingað til og lagt fram þingsályktun fimm eða sex sinnum um að draga umsóknina til baka. Ég ræddi það hérna, það hefðu verið eðlileg viðbrögð við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hv. þingmaður sagði ekki orð um það, ekki orð, og svarar mér ekki einu orði um það af hverju málið var ekki klárað af hálfu ríkisstjórnarinnar (Gripið fram í.) ef mikilvægi þess er með þessum hætti. Og af hverju kemur það inn núna stuttu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna (Forseti hringir.) með því fororði og þeim breyttu forsendum að ESA sé búið að henda málinu fyrir dómstóla á sama tíma? Af hverju? (Gripið fram í.)