Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir sína ræðu. Mig langaði örlítið að spyrja út í orð hans þess efnis að við værum ekki að brjóta á stjórnarskránni, vegna þess að einn löglærður aðili heldur því fram. En nú liggur fyrir að það er mikill ágreiningur á milli lögfróðra aðila sem og fleiri um hvort við séum að brjóta á stjórnarskránni eða ekki. Því langaði mig að spyrja hv. þingmann hvort honum finnist kannski ekki að stjórnarskráin eigi að njóta vafans þegar þeir sem þekkja best til eru svona ósammála og við erum í þeirri stöðu að þetta verður tekið fyrir dómstóla. Það er búið að upplýsa um það. Er þá ekki, fyrst þetta er svona mikið vafaatriði, best að leyfa þessu að fara dómstólaleiðina og vinna með niðurstöðuna sem kemur þaðan? Því að mögulega vinnum við það mál og þurfum ekkert að hafa áhyggjur af þessu og við getum einbeitt okkur að því að vanda betur lagasetningu og passa að innleiða gerðirnar rétt, passa að lög séu ekki að stangast á og þá höldum við áfram eins og við höfum gert þessi tíu ár án vandkvæða.