Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir svarið. Ég held að það sé nefnilega alveg rétt hjá honum að á sínum tíma, árið 1992, vorum við ekki heldur sammála. Ég held að það sé alveg rétt. En ég held líka að þess vegna hafi samningurinn verið undirritaður og náð í gegn á Alþingi Íslendinga af því að bókunin var með þeim hætti sem hún var í samningnum þá. Fólk samþykkti samninginn af því að þessi forgangsregla var ekki til staðar. Það var samþykkt í Evrópu líka og þetta er bara samningur og ég lít svo á málið að nú sé að koma eitthvað algjörlega nýtt. Þeir vilja bara breyta grundvallaratriðum samningsins og það finnst mér vera eitthvað sem við þurfum að verjast en það er kannski þar sem við erum ekki alveg sammála.
Þannig að mig langar kannski að spyrja bara hérna í seinna andsvari hvort hv. þingmaður hafi þá ekki áhyggjur af lögum sem við semjum núna á Alþingi Íslendinga. Tökum sem dæmi að við erum með þessi leigubremsulög. Það er ekkert í því frumvarpi þar sem stendur að það sé nú bara alveg séríslenskt, að við viljum að það haldi, enda er enginn að setja slíka klásúlu inn í lögin. En við getum fengið einhverja EES-gerð eftir nokkra mánuði sem myndi ógilda þau eða, það sem verra er, það gæti verið eitthvað áður sem myndi gera þau ógild og þá er þessi réttur um íslensku lögin ekki til staðar, þannig að þurfum við ekki að byrja á að skoða hvort það sé möguleiki á að það sé bara mikið af lögum sem skarast áður en við förum að hlaða ofan á þetta, ef við ætlum að samþykkja bókun 35?