Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir hennar síðara andsvar. Þótt hún hafi ekki gert það að neinu atriði þá er nú raunverulega bara skemmtilegt að vera svolítið ósammála. Þannig held ég að það gerist nú hérna í þessum sal og við munum ekki leysa það. Hins vegar held ég að umræðan sé áhugaverð. Ef ég skildi hv. þingmann rétt var hún að velta fyrir sér að það lægi fyrir eldra lagaákvæði sem væri upprunnið frá EES og við værum að setja lög og gættum ekki að því að önnur lagaákvæði trompuðu hitt. Og þetta er auðvitað þessi forgangsregla sem um ræðir og það er þá breytingin sem er verið að gera núna. Það er verið að færa okkur frá skýringarreglu yfir í forgangsreglu. Það er það sem væntanlega er grundvallaratriði til þess að mæta því sem margir hafa haldið fram, að við höfum ekki náð að innleiða nægilega vel þessa reglu í lögunum sem tóku gildi 1. janúar 1994. Og svo ég lesi bara það sem stendur í fororðunum, með leyfi forseta:
„Í fororðum með bókuninni segir jafnframt: „Þar eð með samningi þessum er stefnt að einsleitu evrópsku efnahagssvæði …““ — það er ástæðan — „„sem byggist á sameiginlegum reglum, án þess að samningsaðila sé gert að framselja löggjafarvald til stofnana Evrópska efnahagssvæðisins““ — án þess að samningsaðila sé gert að framselja löggjafarvald til stofnana Evrópska efnahagssvæðisins. Ég veit að þetta eru miklu flóknari lögfræðileg atriði en bara að lesa þessa setningu. En þetta er einfaldlega samt sem áður það sem við hengjum hatt okkar væntanlega á, að það er sérstaklega tiltekið í bókuninni að það sé ekki verið að framselja lagasetningarvaldið.