158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[20:28]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Ég reyni að svara þessum spurningum en þær eru svolítið yfirgripsmiklar. Ég ætla að reyna að svara þeim eins vel og ég mögulega get og næ kannski ekki öllu í fyrsta andsvari.

Fyrst: Hvað er þessi ríkisstjórn að hugsa með því að vilja halda þessari umsókn einhvern veginn virkri? Við skulum ekki gleyma því — ég var ráðherra í nærri fimm ár, eftir það Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þar á undan Lilja Alfreðsdóttir, ekkert okkar kannast við að Evrópusambandið hafi nokkurn tímann sagt að við værum með virka aðildarumsókn, fyrir utan það að þeir hættu náttúrlega með IPA-styrkina, svo einhver dæmi séu tekin, því að það er ákveðin staða að vera umsóknarríki.

Það sem gerist eftir alla þessa fundi, sem voru ekki til að gæta hagsmuna Íslands, þar sem utanríkisráðherra núverandi og væntanlega forsætisráðherra eru að tala við forystumenn Evrópu og það gekk út á það að þessi umsókn — sem er vissulega umdeilt hvernig var gengið frá, við skulum ekkert draga fjöður yfir það — sé virk. Af hverju held ég að þetta sé gert? Ég held að þetta sé gert til þess — vegna þess að þú þarft ekki þjóðaratkvæðagreiðslu til að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Við erum eina ríkið sem höfum gert það. Það er vanalega kosið um það í alþingiskosningum en það þarf heldur ekki. Þannig að ef ríkisstjórnin, sama hver hún er og á hvaða tímapunkti, kemur til Brussel og segir: Heyrðu, við viljum sækja um, þá getur hún gert það. Það þarf ekki einu sinni þingmeirihluta. Evrópusambandinu er nokk sama hvernig það er gert. Það virðist sem ástæðan fyrir því að þau vildu halda henni virkri sé að þá þyrfti ekki að fá samþykki allra aðildarríkja Evrópusambandsins, sem hefur kannski verið umræða sem er óþægileg, því að þá er náttúrlega dregið fram hvað fælist í því að vera í Evrópusambandinu o.s.frv. sem á að reyna að halda frá fólki. Ástæðan fyrir því að þau vilja halda henni núna virkri og vilja ekki draga hana til baka er að þau dreymir um að það komi einhvern tímann sú staða upp (Forseti hringir.) að þau geti, og örugglega án þjóðaratkvæðagreiðslu, (Forseti hringir.) sótt um aðild að Evrópusambandinu með einhverri flýtimeðferð sem myndi þýða litla umræðu í ESB-þinginu og þar af leiðandi litla umræðu hér heima. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)