158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[20:30]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka fyrir svarið en mig langaði í seinna andsvari að velta því upp með hv. þingmanni hvort það geti ekki verið að ríkisstjórnin, flestallt sem hún gerir, sé liður í því að fara bakdyramegin inn í Evrópusambandið. Hvernig byrjaði þetta? Það var samið um makrílinn, það steytti á honum síðast. Þá voru bara gerðir lélegir samningar varðandi makrílinn. ESB brýtur á okkur og við bara tökum ekki til varna. Sjávarútvegurinn, það er ákveðið að veikja hann. Efnahagsmálin eru í rugli, það miklu rugli að mann var farið að gruna að menn vildu hafa ástandið slæmt þegar það var boðað til kosninga. Og nú kemur þetta, bókun 35, þar sem EES-reglur sem venjulega mega vera rétthærri þeim lögum sem við setjum hér á Íslandi. Það virðist bara hvert málið á fætur öðru vera til þess gert að veikja stöðu Íslands en koma okkur bakdyramegin inn í Evrópusambandið. Mig langar að segja: Er þetta ósanngjörn vangavelta hjá mér eða heldur þú að það sé eitthvað til í þessu?