Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir spurningarnar.Ég komst að vísu ekki í að svara áðan varðandi Gunnar Braga Sveinsson. Hvað eru menn að fela þar? Það er með slíkum ólíkindum og þetta var gert á slíkum hraða. Við hefðum alltaf átt að skoða hvað þarna fór fram. Það er með ólíkindum að það hafi ekki verið vilji ríkisstjórnarinnar. Ef hún hefði trúað því að hún væri í alvöru virk þá hefðu þau átt að sýna öll gögn þáverandi utanríkisráðherra en þau vildu ekki gera það. En hv. þingmaður spyr hvað sé verið að fela. Ég veit það ekki vegna þess að það er falið. Ég hafði ekki aðgang að því og hafði ekki hugmyndaflug í að reyna að leita að því þegar ég var í ráðuneytinu.
Síðan aðeins bara varðandi það — það eru flestar þjóðir sem hafa farið inn og legið frekar lágt, eftir fjárhagsáföll eða annað slíkt. Þegar núverandi forsætisráðherra lofaði því að við færum ekki í þessa vegferð þá talaði hún um að þegar gengur illa í efnahagslífinu vilji menn eitthvað annað eins og að fara inn í Evrópusambandið. Bókun 35 er annað mál. (Forseti hringir.) Við erum náttúrlega búin að innleiða hana og ég hef lítið rætt hana vegna þess að ég vil draga athygli núna að öðrum þáttum sem mér finnst ekki að ríkisstjórnin (Forseti hringir.) geti platað okkur í þinginu og almenning með því að tala um eitthvað allt annað. Við verðum að klára þessi mál sem ég nefndi hér áðan og þau tengjast.