158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[22:14]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tel mjög mikilvægt að það verði að sjálfsögðu haft samráð við hv. utanríkismálanefnd. Mér finnst hins vegar áhugavert að hv. þingmaður, sem hefur talað um mikilvægi EES-samningsins, er að tala hér í máli sem er núna lagt fyrir í þriðja eða fjórða sinn og segir að það sé ekki hægt að klára málið fyrir lok nóvember. Þetta er mál sem hefur farið ítrekað í gegnum þingið og í gegnum umræðu, bæði hér í 1. umræðu en líka inni í hv. utanríkismálanefnd. Ég verð að segja að ég hef nú séð að þingið getur klárað mál og haft getu til þess að gera það. En ef það verður ekki þá verður að sjálfsögðu haft samráð við utanríkismálanefnd þannig að við förum ekki í einhvern orðhengilshátt með þetta.

Ég held að ég lesi upp úr nokkrum ræðum hér en það er búið að vera að dylgja mjög mikið hér í dag að mínu mati. Einhver hefur talað um að ég hafi ekki verið að fara með rétt mál í ákveðnu máli sem ég er ósammála. (Gripið fram í.) — Ja, það er nefnilega spurning um ýmislegt. Miðflokkurinn hefur gerst sekur um mjög margt í þessu máli að mínu mati. (Gripið fram í.) Mér finnst slæmt að það sé verið að gefa til kynna að þetta mál snúist um eitthvað annað heldur en það raunverulega snýst um. (BergÓ: … brigsla öðrum um stjórnarskrárbrot. )

(Forseti (BHar): Ég ætla að biðja þingmenn um að gefa ræðumanni í stól orðið. Gjörðu svo vel.)

Ég þakka hæstv. forseta fyrir. Það hefur verið gert hér í dag, það hefur verið gert undir rós. Það hefur verið ýjað að því að við séum hugsanlega að fara gegn stjórnarskrá Íslands þegar ég er margbúin að ítreka að þetta mál snýst ekki um það, eins og Hæstiréttur hefur líka sagt og ég vil hvetja hv. þingmann til að lesa dóm Hæstaréttar.