Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir prýðilega ræðu. Mig langar aðeins að ræða við hv. þingmann og spyrja út í afstöðu hans eða túlkun á þeim upplýsingum sem lögskýringargögnin bera með sér frá samningagerðinni 1992. Í raun og veru má kannski segja að þau og aðdragandinn allur að setningu EES-samningsins í íslensk lög staðfesti að stjórnmálamennirnir okkar á þeim tíma hafi verið meðvitaðir um að bókun 35 gæti aðeins orðið einhvers konar stjórnskipunarleg málamiðlun þar sem stjórnarskráin okkar heimilaði ekki þessa leið. Það sé í raun og veru 3. gr. eins og við höfum lagt hana upp, þ.e. varanleg undanþága, og þá meina ég varanlega undanþágu frá þessum forgangsrétti vegna þess að samningsaðilar í EES, þ.e. hinir aðilarnir, mótaðilarnir í þessu samstarfi, voru að fullu meðvitaðir um að verið var að gera þennan samning með þessum hætti vegna þess hvernig hin íslenska stjórnarskrá leit út.
Þess vegna þykir mér eðlileg spurning, hv. þm. Jón Pétur Zimsen, hvort hv. þingmaður meti það ekki þannig að öllum málsaðilum hafi mátt vera ljóst á þessum tíma, eftir allar þessar þreifingar sem enduðu svo með því að þetta varð að lögum í janúar 1993, að það varð að gera þetta með þessum hætti vegna þess hvernig íslenska stjórnarskráin er.