158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[22:59]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir þetta ágæta andsvar. Þegar þetta fór í gegn þarna 1992 voru menn að velta þessu fyrir sér með stjórnarskrána og allt í kringum það. Ég hef lesið mér til um þetta en er ekki löglærður. En Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, hefur skrifað ágætispistla um þetta og á þeim tíma teygði þessi regla, eða bókun 35, eins og ég skil það, út stjórnarskrána og þandi hana eins og hægt var. Breytingar á þessu núna, a.m.k. eins og ég skil það — alla vega deila lögspekingar, löglærðir menn, um hvort þetta rúmist inni í stjórnarskránni. Ég hef ekki farið í hausatalningu á því hvorum megin það liggur, hvort menn eru meira sammála því eða ekki, en það er ágreiningur um þetta mál. Hann birtist hér í þinginu og hann birtist úti í samfélaginu, hann birtist hjá lögmönnum víða um land.

Þannig að mér þætti ekki óþægilegt að fara með kassann út, eins og hæstv. utanríkisráðherra hefur oft talað um, til Lúxemborgar og, eins og Carl Baudenbacher segir, fá einhverja leiðsögn þar. Ég hræðist það ekki. Það er þá annaðhvort bara að samþykkja þetta núna og fara í gegnum þetta eða þá að fá leiðsögn. Hvernig erum við verr sett með því að fá leiðsögn? Ég sé það ekki alveg.