Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Málið 1992 var unnið þannig, samþykkt og skrifað undir það þannig að það var ekkert brotið á þeim tíma. Síðan líður tíminn og það koma upp einhver mál og á endanum er dæmt. Hæstiréttur dæmir hér að þetta virki ekki eins og það á að virka, að mig minnir 2014. Ég held að við Íslendingar höfum ekki beint gerst brotlegir við eitt eða neitt, enda var ekki vísvitandi með neinum hætti verið að fara á svig við eitt eða neitt. Hérna var bara skrifað undir samning 1992 með alls konar viðaukum og bókunum. Menn reyndu að gera það eftir bestu getu og okkar bestu menn voru þar í fremstu víglínu.
Ég er kominn út á einhverjar brautir þar sem mitt sérsvið liggur ekki alveg, en svona almennt, sem leikmaður í lögum, get ég ekki séð að við Íslendingar höfum, alla vega ekki með vísvitandi hætti, brotið eitthvað sem við hefðum ekki átt að gera. En samfélagið þróast og það verður til eitthvað annað og nýtt og einhverjar seinni gerðir valda því að við erum þarna dæmd rangstæð. Það er kannski besta svarið sem ég get gefið hv. þingmanni eins og staðan er núna.