Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Þetta hefur verið um margt áhugaverð umræða. Skilaboð okkar sjálfstæðismanna eru mjög skýr. Við teljum afskaplega mikilvægt að standa vörð um EES-samninginn og í máli eins og þessu eigum við auðvitað að fara vel yfir það og vanda okkur. En við frábiðjum okkur allar ásakanir um það að ef við tökum ekki undir hvert orð hjá hæstv. ráðherra séum við einhvers konar andstæðingar samningsins sem er eins langur vegur frá og mögulegt er.
Ég vil vekja athygli á því, það kom ekki fram hér áðan, að hæstv. ráðherra kom inn, sem er gott, en ég held að það sé ekki ósanngjarnt að segja að hæstv. ráðherra hafi ekki borið klæði á vopnin með framgöngu sinni, ég held að það sé ekki ofmælt. En ef marka má fregnir sem komu fram á mbl.is þar sem er viðtal við Árna Pál Árnason þá þurfum við að fara eitthvað dýpra í það, og ég hvet hv. utanríkismálanefnd til að skoða það, hvaða afleiðingar það hefur ef menn samþykkja þetta frumvarp. Fyrirsögnin á viðtalinu er, með leyfi forseta: „Málið metið að nýju ef Ísland innleiðir bókun 35“. Þá er verið að vísa til frumvarpsins sem liggur hér fyrir. Það er svolítill munur á því að það sé metið að nýju eða hvort málið sé dregið til baka. En það bíður stórt verk fyrir hv. utanríkismálanefnd því að það hefur ýmislegt komið fram hér í umræðunni og líka í aðdragandanum sem gerir það að verkum að það verður að skoða málið.
Ég ætla þó í lokin að ítreka það sem ég sagði áður, að það er ekki trúverðugt af hálfu stjórnvalda að tala eins og þau séu sérstaklega að ganga fram til að gæta hagsmuna EES-samningsins og allir þeir sem fylgja þeim ekki í hvívetna geri það ekki. Það er ekki trúverðugt ef viðkomandi stjórnmálamaður, sem hefur trú á EES-samningnum og telur að hann sé besta leiðin í samskiptum okkar við Evrópu og þá í tilviki Evrópusambandsins, gerir að sama skapi allt hvað hann getur til að halda inni einhverri umsókn að Evrópusambandinu. Það er fráleitt að leggja þetta upp með þeim hætti eins og hæstv. ráðherra gerði.
Hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir hélt fína ræðu þar sem hún fór yfir það — ég hefði viljað heyra það fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna því að það var ekki hægt að fá það fram frá jámönnum — hve mikill munur er á því að vera annars vegar í Evrópusambandinu og hins vegar í EES-samstarfinu. Það er gríðarlega mikill munur. Það var mjög vel gert og ég hvet alla til að kynna sér ræðu hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur þar sem hún fór yfir hvernig ESB-rétturinn gildir og hvernig það sem kemur frá Evrópusambandinu verður sjálfkrafa að lögum og reglum í viðkomandi ESB-ríkjum. Þetta er ástæðan fyrir því að ríki EFTA, ekki bara þau þrjú sem eru núna heldur líka þau sem voru í því á sínum tíma og vildu ekki ganga inn í Evrópusambandið, voru ekki tilbúin í þetta. Það að segja einhvern veginn núna: Nei, nei, þetta er allt það sama og þó svo að við séum að gera allt til að koma okkur í Evrópusambandið þá erum við líka rosalega fylgjandi þessu, það stenst enga skoðun.
Þetta er það sem maður hefur áhyggjur af. Við verðum að ræða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Við verðum að ræða af hverju ríkisstjórnin mun ekki, því að ég veit að hún ætlar ekki að gera það, ætlar ekki að taka fyrir frumvarp hv. þingmanna Guðrúnar Hafsteinsdóttur, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Stefáns Vagns Stefánssonar um að afturkalla umsóknina. Þau ætla ekki að gera það. Og ef þau ætla ekki að gera það skulu þau ekki á sama tíma koma og segja að þau séu svo svakalega fylgjandi EES-samningnum. Þau vilja fara í Evrópusambandið og það er stór munur þar á, svo ég tali nú ekki um önnur þau mál sem ég nefndi þarna. Ég ætla ekki að fara í það núna. Þessari ræðu fer að ljúka. Ég vonast bara til þess að við berum gæfu til að vinna þetta mál vel og reyna að ná samstöðu í það minnsta um hvað við erum ósammála um og fá upplýsingar frá því allra besta fólki (Forseti hringir.) sem þekkir þetta mikilvæga mál. Við sjálfstæðismenn höfum stutt og munum styðja EES-samninginn.