Störf þingsins.
Forseti. Stundum finnst mér á málflutningi minni hlutans eins og athyglisspönn ríkisstjórnarinnar geti bara einskorðast við eitt viðfangsefni í einu. Það lýsir kannski frekar þeirra hugarheimi frekar en einhverju öðru og gefur kannski ágætisskýringu á því verkstoli sem ríkti hér í tíð fyrri ríkisstjórnar. En mig langar aðeins að upplýsa þingheim um þá staðreynd að það er sannarlega hægt að gera fleiri en einn hlut í einu. Það er það sem þessi ríkisstjórn hefur verið að gera með góðum árangri. Það hefur til að mynda verið í gangi einhvers konar þráhyggja hjá minni hlutanum um að ríkisstjórnin hafi bara getað einblínt á Evrópusambandið síðustu mánuði og ekkert annað hafi komist á dagskrá. Það er sem sagt í þeirra hliðarveruleika en í okkar raunveruleika þá kláruðum við samgönguáætlun, settum á fót innviðafélag, kláruðum tvo rammapakka í rammaáætlun, hallalaus fjárlög, settum heildarlög um vindorku og jú, kláruðum sannarlega líka þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við ESB. En þarna gátum við gert bæði og.
Það hefur einnig verið mjög algengt narratíf að við séum svo upptekin af Evrópu að við getum ekki horft í aðrar áttir og átt samtöl við aðrar vinaþjóðir. Þetta sást vel í umræðunni hér í gær. Á sama degi og Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom í opinbera heimsókn til Íslands þar sem hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. forsætisráðherra áttu gagnleg samtöl við ráðherrann kepptust þingmenn meiri hlutans við að koma hingað upp í þessa pontu, í umræðu um bókun 35, og væna ríkisstjórnina um að vera með Evrópuþráhyggju. Hvað með efnahagslífið og kjarasamninga? sögðu þau líka, eðlilega. Jú, á sama tíma og þingmenn tóku hér tíu klukkutíma í að ræða bókun 35 á þinginu í fjórða skipti þá voru hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra önnum kafnir við að leysa þann hnút sem blasti við í kjaradeilum vinnumarkaðarins með að því er virðist fínum árangri, sem betur fer.
Því spyr ég: Hefur minni hlutinn ekki athyglisspönn fyrir neitt nema Evrópu?