Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í upphafi skyldi endinn skoða. Þegar ég ræddi hér á Alþingi í maí 2025 um fyrirhugaðar breytingar á námsmati í grunnskólum lagði ég áherslu á að menntakerfið þyrfti að byggjast á gæðum, jafnræði og gagnsæi. Þær breytingar sem Alþingi samþykkti síðasta vor lögðu m.a. grunn að matsferli og nýju fyrirkomulagi samræmds námsmats. Nú stendur hins vegar fyrir dyrum önnur breyting á námsmati. Frá og með vorinu 2027 verða lokaeinkunnir nemenda í 10. bekk gefnar á tölukvarða í stað bókstafanna A til D. Það er mikilvægt að hafa í huga að þessar einkunnir eru ekki prósentueinkunnir. Einkunnin 8 þýðir þannig ekki að nemandi hafi náð 80% réttum svörum heldur er hún heildstætt mat á þeirri hæfni sem nemandinn hefur sýnt yfir skólaárið með hliðsjón af hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Við vitum þegar að mikill munur hefur verið á dreifingu lokaeinkunna milli grunnskóla en breyting á kvarðanum tryggir ekki ein og sér að námsmat verði sambærilegt milli skóla. Ef nemandi fær 8 í einum grunnskóla og annar nemandi 8 í öðrum, hvað tryggir að þar búi að baki sambærileg hæfni? Þetta skiptir máli þegar nemendur fara úr grunnskóla yfir á næsta skólastig. Lokaeinkunnir geta þar haft áhrif á möguleika þeirra til áframhaldandi náms. Ef við ætlum að tryggja jafnræði nemenda við lok grunnskóla verðum við að geta treyst því að lokamat þeirra hafi skýra og sambærilega merkingu, óháð því hvaða grunnskóla þeir sóttu. Annað væri einfaldlega ósanngjarnt.