158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

Byggðastofnun.

156. mál
[14:35]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun. Frumvarpið hefur verið lengi á dagskrá í ráðuneytinu en gildandi lög tóku gildi þann 1. janúar árið 2000. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Til stóð að leggja frumvarpið fram á 157. löggjafarþingi en því var frestað vegna anna.

Byggðastofnun er lykilstofnun þegar kemur að byggðamálum og hefur verið svo frá árinu 1985 þegar stofnunin tók til starfa með lögum nr. 64/1985. Í gildandi lögum er að finna hugtök og fyrirmæli sem ekki eru lengur í samræmi við það sem viðgengst í dag, auk þess sem samræma þarf stjórnarhætti stjórnar stofnunarinnar við stjórnarhætti fjármálafyrirtækja, enda er Byggðastofnun að hluta lánastofnun og fellur undir lög um fjármálafyrirtæki.

Þá hefur staðið yfir samtal milli stjórnvalda og Eftirlitsstofnunar EFTA um sjálfstæði Byggðastofnunar sem eftirlitsstjórnvalds með póstþjónustu. Með þessu frumvarpi er ætlunin að skerpa á sjálfstæði stofnunarinnar sem eftirlitsaðila með póstþjónustu.

Virðulegi forseti. Markmið þessa frumvarps er fyrst og fremst að færa lögin í nútímalegt horf og styrkja stöðu stofnunarinnar sem eftirlitsstjórnvalds með póstþjónustu. Rétt þykir að reifa efni frumvarpsins í stuttu máli. Lagt er til í frumvarpinu að í stað orðsins atvinnuþróunarfélag komi orðin landshlutasamtök sveitarfélaga. Landshlutasamtök sveitarfélaga þekkjum við vel úr sveitarstjórnarlögum og þurfum við ekki að útlista þau ítarlega hér fyrir þingheimi en atvinnuþróunarfélög landshlutanna hafa sameinast landshlutasamtökunum. Gerð er ítarleg grein fyrir þróuninni á þessari hugtakanotkun í greinargerð með frumvarpinu og hvernig hún hefur breyst í gegnum árin en upphaflega var notast við landshlutasamtök sveitarfélaga. Ég vísa til frekari skýringa til greinargerðar frumvarpsins.

Virðulegi forseti. Svo sem fram kom í inngangi ræðu minnar hefur staðið yfir samtal milli stjórnvalda og Eftirlitsstofnunar EFTA um sjálfstæði stofnunarinnar. Það er mat íslenskra stjórnvalda að stofnunin uppfylli öll skilyrði 22. gr. pósttilskipunar Evrópusambandsins eins og henni hefur verið breytt í gegnum árin. Hins vegar telur ráðuneytið eðlilegt og skynsamlegt að gera þó lítilvægar breytingar á lögunum að þessu sinni en opna á frekari skoðun á því hvernig eftirliti með póstþjónustu verði háttað til framtíðar þegar póstþjónustulög verða tekin til endurskoðunar.

Það liggur fyrir, virðulegi forseti, að það er að koma ný Evrópupóstlöggjöf innan tíðar frá Brussel og margir spennandi hlutir að gerast á málefnasviðinu og því ekki úr vegi að endurskoða eftirlitsþáttinn í leiðinni. Þær breytingar sem lagðar eru til að þessu sinni eru að hnykkt er á því að verkefni póstþjónustu skuli vera aðskilin öðrum verkefnum Byggðastofnunar og að við eftirlit með póstþjónustu sé stofnunin sjálfstæð gagnvart ráðherra í skilningi laga um Stjórnarráð Íslands. Þá er skýrt kveðið á um að póstmálefni heyri ekki undir stjórn stofnunarinnar.

Þá eru lagðar til breytingar sem eiga í fyrsta lagi að skerpa á aðkomu stofnunarinnar við gerð byggðaáætlunar, sjá nýja málsgrein við 2. gr., í öðru lagi að efla samstarf Byggðastofnunar við atvinnuráðgjafa, sjá 8. gr. frumvarpsins, og í þriðja lagi er breyting á þagnarskyldu og nýtt persónuverndarákvæði er kom inn í lögin, sjá 8. gr. frumvarpsins.

Loks eru ákvæði í frumvarpinu sem lúta að stjórn og forstjóra Byggðastofnunar. Í 3. gr. frumvarpsins er lagt til að forstjóri Byggðastofnunar fái aukið sjálfstæði, t.d. að hann ákveði sjálfur hvernig skipulagi stofnunarinnar sé háttað og hann velji sér sjálfur staðgengil sinn. Þetta fyrirkomulag eykur sveigjanleika í rekstri Byggðastofnunar og eykur getu forstjóra til að bregðast t.d. við rekstrarerfiðleikum og er í samræmi við nútímastjórnarhætti. Flestar breytingar sem lagðar eru til á ákvæðum er varða stjórn Byggðastofnunar eru til að samræma ábyrgð stjórnar við reglur um stjórnir fjármálafyrirtækja, samanber lög um fjármálafyrirtæki. Einnig er verið að útvíkka heimildir stjórnar í 2. tölulið c-liðar 2. gr. frumvarpsins þar sem reglur stjórnar ná ekki aðeins til lána og ábyrgðarveitinga heldur einnig til hlutafjárviðskipta. Að öðru leyti er ekki verið að breyta efnislegum valdheimildum stjórnar.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umræðu.