húsaleigulög.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra kærlega fyrir hans seinna andsvar. Að sjálfsögðu er það valkvætt í hvaða sérfræðinga er vitnað. En ég held að kannski liggi svona í hlutarins eðli að hér hafi verið talað um orð seðlabankastjóra í morgun sem var staddur í vaxtakynningu og var að fara yfir þá háu vexti sem núverandi hæstv. ríkisstjórn er búin að hleypa hérna upp úr öllu valdi. Ég held að við munum aldrei ná einhverjum samhljómi um frumvarpið sjálft því að það er bara okkar sýn í Sjálfstæðisflokknum að þetta muni ekkert ganga. Þú getur ekki farið að hækka leigu og verið með bremsu á leigu yfir 12 mánaða tímabil. Það segir sig sjálft að þá mun verðið hækka. Þetta mun að okkar mati aldrei ná í rauninni neinni niðurstöðu í það sem þetta á að gera.
Hæstv. ráðherra talar mikið um Norðurlöndin og ég skil alveg að það sé verið að sækja hugmyndir þangað. En ég held að það sé ansi tæpt að vera að setja stöðuna á Norðurlöndum ofan á það sem er að gerast á Íslandi akkúrat núna miðað við hvernig staðan er. Sér í lagi af því að við erum búnir að tala hérna í báðum andsvörum og hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra er búinn að minnast mikið á þessa kjarasamninga, að staðan á þeim og ástæðan fyrir því að verið er að taka þá upp er af því að hér er — ég ætla nú ekki að fara alla leið í óefni af því að við erum að reyna að eiga tempraða umræðu en staðan er ekki góð. Þannig að mér finnst mjög hæpið að vera að leggja að jöfnu það sem er að gerast á Norðurlöndunum akkúrat ofan í ástandið hér. Hugmyndin er góð. Það hefur margt komið inn í íslensk lög og bara inn í íslenskt þjóðfélag frá Norðurlöndum þar sem þau náttúrlega eru með miklu stærri samfélög en ég get ekki séð hvernig staðan þar rímar við stöðuna hér (Forseti hringir.) akkúrat ofan í ríkjandi kjaradeilur.