158. löggjafarþing — 14. fundur,  7. okt. 2026.

ákvarðanir nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn o.fl.

158. mál
[18:30]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Stutt að þessu síðasta. Hagaðilar hafa, að mér skilst, hvatt til þess að „scrap loophole“ verði tekið þarna inn til þess að menn séu ekki að svindla á kerfinu. Markmiðið með þessu er auðvitað að hluta til að viðskipti verði meiri á innri markaðnum. Það er að hluta til markmiðið með þessu. Ef það koma vörur að utan þá eru þær grænni. En við styðjum við innri markaðinn og um leið sjálfbærni hans um leið og það er þá ýtt undir að ef það er innflutningur þá sé hann í grænni kantinum.

Miðað við innflutning árið 2025 á CBAM-vörum yfir 50 tonnum þá benda núverandi forsendur til þess að kostnaður fyrirtækja verði þannig að íslensk fyrirtæki greiði litlar fjárhæðir og hafi ekki teljandi áhrif á verðbólgu miðað við þær upplýsingar sem ég hef. Eins og ég gat um áðan þá hefði CBAM-kerfið orðið til óháð því hvort Ísland tæki þátt eða ekki, verðbólguáhrifin erlendis hefðu alltaf haft áhrif á íslenskan iðnað algerlega óháð þátttöku okkar. Ég vil enn undirstrika það að mat okkar var því að reyna að vera þá betur varin innan kerfisins en utan.

Ég undirstrika enn og aftur að þetta er að fara til nefndar. Ég veit að hún mun fara, eins og henni er einni lagið, vel yfir þessa þætti. Við vorum í gær með eitt mál til að undirstrika mikilvægi EES-samningsins og okkar starf innan hans. Þetta er enn eitt málið sem ýtir undir það að við stöndum við okkar skuldbindingar. Við gerum það af ábyrgð, við tökum þátt, við bendum á það sem betur má fara og sinnum okkar hagsmunagæslu. Það höfum við gert í þessu máli og þetta er einn liður í því sem ríkisstjórnin ætlar sér, þ.e. að verja EES-samninginn með ráðum og dáð.