158. löggjafarþing — 15. fundur,  8. okt. 2026.

sveitarstjórnarlög.

59. mál
[15:22]
Horfa

Flm. (Sigríður Á. Andersen) (M):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og varðar frumvarpið fjölda fulltrúa í sveitarstjórn. Þetta frumvarp hef ég lagt fram fjórum sinnum og hef mælt fyrir því a.m.k. einu sinni ef ekki tvisvar áður. Þær aðstæður sem helst hafa breyst frá því að ég mælti fyrir þessu frumvarpi á síðasta þingi eru að hér í Reykjavíkurborg hefur verið kjörin ný borgarstjórn. Mér til mikillar ánægju sá ég í vikunni að borgarstjórn samþykkti ályktun um að kalla eftir því að Alþingi myndi breyta sveitarstjórnarlögum með það að markmiði að veita borgarstjórn meira svigrúm til að ákveða fjölda borgarstjórnarfulltrúa. Þetta frumvarp sem ég mæli hér fyrir hefur í eðli sínu og í sjálfu sér eingöngu áhrif á fjölda borgarfulltrúa en ekki sveitarstjórnarmanna eða fjölda fulltrúa í öðrum sveitarstjórnum.

Í 11. gr. sveitarstjórnarlaga er kveðið á um fjölda sveitarstjórnarmanna í sveitarfélögum og það eru ákveðin rök sem standa til þess að Alþingi eða löggjafinn setji fjölda sveitarstjórnarmanna einhverjar skorður. Menn kunna að hafa á því einhverjar skoðanir og ég veit að það liggur fyrir annað frumvarp þar sem lagt er til að sveitarstjórnum sé þetta algerlega frjálst en þó þannig að sveitarstjórnarfulltrúar verði ekki færri en þrír. Það má færa fyrir því málefnaleg rök að löggjafinn hafi á þessu skoðun, að eftir því sem sveitarfélögin stækki sé tilefni til að hafa þennan þröskuld eða botninn hærri í einhverjum tilvikum. Ég tek það þó fram að ég hef í sjálfu sér ekki alveg sérstaka skoðun á því hversu lágt og eðlilegt er að fara í þessum efnum. Það mætti skoða það. En það sem ég mæli sérstaklega fyrir um er að það þarf að vera þarna a.m.k. það svigrúm sem sveitarstjórnirnar sjálfar kalla eftir.

Í 11. gr. sveitarstjórnarlaga er kveðið á um fjölda sveitarstjórnarmanna og þar er kveðið á um að séu íbúar 50.000 til tæplega 100.000 skuli sveitarstjórnarmenn vera 15 hið fæsta en 23 hið flesta og það er auðvitað bara Reykjavíkurborg sem fellur þarna undir. Í 5. tölulið segir síðan að þar sem íbúar séu 100.000 — fyrirgefið, virðulegur forseti, ég þarf að leiðrétta mig, það er að sjálfsögðu ekki Reykjavík sem fellur þarna undir vegna þess að í 5. tölulið er vikið að þeim sveitarfélögum þar sem íbúar eru 100.000 eða fleiri. Það er Reykjavík. Þar skuli sveitarstjórnarmenn vera 23–31 aðalmenn, eins og það er orðað. Þarna fellur Reykjavík undir þannig að það er ekki heimilt lögum samkvæmt fyrir borgarstjórn Reykjavíkur að ákveða að borgarfulltrúar verði færri en 23. Þeir hafa verið það síðan 2017, að mig minnir, var fjölgað. Þeir eru sem sagt orðnir 23 og hafa aldrei verið fleiri.

Það hefur gerst að borgarstjórn hafi ákveðið að fjölga borgarfulltrúum, t.d. á kjörtímabilinu 1978–1982. Þá var ákveðið að fjölga borgarfulltrúum úr 15 í 21 en sú ákvörðun kom aldrei til framkvæmdar vegna þess að á næsta kjörtímabili ákvað borgarstjórn að fækka þeim aftur í 15. Þetta virkar þannig að borgarstjórn ákveður fjöldann en sú ákvörðun getur ekki tekið gildi fyrr en við næstu kosningar eða jafnvel þarnæstu kosningar. En það var ekki fyrr en með nýjum heildarlögum, nýjum sveitarstjórnarlögum árið 2011, að ákvarðað var þetta mark sem ég nefndi hér áðan, 23–31 aðalmenn fyrir sveitarfélög með 100.000 íbúa. Í Reykjavík eru núna 6.000 íbúar á hvern borgarfulltrúa. Og af því að mörgum hér inni er oft tamt og virðast njóta þess mjög að bera Ísland saman við Norðurlöndin og vilja taka upp reglur þaðan og, eins og menn orða það oft, gera eins og Norðurlöndin gera þótt vissulega sé nánast eiginlega ekki nokkur einasta regla eða lagaákvæði sem er samnorrænt í rauninni, þá legg ég fram í greinargerðinni yfirlit um það hvernig þetta er í löndunum í kringum okkur. Þetta hlutfall borgarfulltrúa á íbúa er langhæst í Reykjavík. Í Kaupmannahöfn til samanburðar eru það um 11.600 íbúar á borgarfulltrúa, í Ósló um 12.000 íbúar á borgarfulltrúa, í Stokkhólmi 9.700 á hvern borgarfulltrúa, í Helsinki 8.000. Það er líka vert að hafa það í huga að hér í Reykjavík, ólíkt öðrum sveitarfélögum, eru varamenn, a.m.k. fyrsti varamaður hvers flokks sem nær kjöri í borgarstjórn, líka á launum, eru á aðeins lægri launum en borgarfulltrúar, 70% af laununum og fá þess utan eitthvert nefndarálag þannig að ég hygg nú að varamenn séu á sambærilegum launum og borgarfulltrúar. Það má því segja að það sé í rauninni 31 kjörinn fulltrúi sem starfi á fullum launum við að sinna borgarmálum. Annars staðar á Norðurlöndum, svo ég víki aftur að samanburðinum, eru almennt bara borgarráðsfulltrúar í fullu starfi í borgarmálunum. Aðrir borgarfulltrúar eru í hlutastarfi og starfa gjarnan samhliða því að fullu í einhverjum öðrum störfum. Það er ágætt að hafa þetta í huga. En þetta snýst auðvitað ekki um laun einstakra borgarfulltrúa. Það má segja, eins og oft er sagt, að það sé enginn stórkostlegur sparnaður fjárhagslega í því að fækka borgarfulltrúum. Hann er þó einhver. En núna í ljósi reynslunnar frá því að borgarfulltrúum var fjölgað úr 15 í 23 finnst mér vert að líta til þess og bara velta því fyrir sér, hver og einn getur spurt sig að því, Reykvíkingar, hvort þeim finnist borgarmálin vera í einhverju sérstaklega betra horfi nú en þau voru fyrir þessa fjölgun. Ég hjó eftir því að nýkjörinn borgarstjóri Reykjavíkur var spurð að þessu nákvæmlega og það er a.m.k. hennar mat sem hefur setið í borgarstjórn í fleiri en eitt kjörtímabil að svo sé í rauninni ekki. Það getur verið jafnvel erfiðara að hafa stóra borgarstjórn, fjölmenna, af ýmsum ástæðum. Mönnum hættir til að missa sjónar á kjörnum fulltrúum. Mönnum hættir til að missa sjónar á heildarmyndinni þegar margir eru um hituna og menn láta það eftir sér að einbeita sér kannski bara að sínum áhugamálum þegar þeir eru kjörnir í borgarstjórn og missa kannski þannig sjónar á heildarmyndinni þegar kemur að stefnumótun, hvort sem það er í stjórnmálum eða í atvinnulífinu, sem skiptir kannski mestu máli að menn geri, þó að menn vilji að sjálfsögðu sérhæfa sig og einbeita sér að einstökum álitaefnum eða vandamálum eða lausnum í sínum störfum.

Í þessu ljósi, þegar reynslan svona liggur fyrir af hálfu borgarstjóra og ég get a.m.k. nefnt það hér að í samtölum mínum við borgarbúa — ég er þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, er Reykvíkingur, borin og barnfædd og hef fylgst með borgarmálum nánast alla mína ævi eins og málum hér á Alþingi og ræði þau oft bara við samferðarmenn mína hérna í Reykjavík. Það hefur verið þannig að fæstir borgarbúar hafa getað nefnt á nafn þá borgarfulltrúa sem eru þó kjörnir hér í fjögur ár hvert sinn. Þeir hafa ekki getað nefnt þá á nafn og eiga erfitt með að fylgjast með störfum þeirra. Og ég greini þann mun eftir að borgarfulltrúum fjölgaði að það virðist hafa orðið við það einhvers konar rof, a.m.k. örlítið rof, á milli kjörinna fulltrúa og borgarbúa. Vissulega má til sanns vegar færa að borgin er að stækka og menn missa kannski áhugann á borgarmálum almennt. En það má líka spyrja sig: Af hverju er það? Borgarmálin eru nú kannski það sem stendur fólki næst því að borgarmálin fjalla um nærþjónustuna, viðkvæmustu þjónustuna sem fólk kallar eftir að samborgarar veiti þeim. Það skýtur svolítið skökku við ef áhugaleysi á borgarmálum hefur aukist síðustu ár, sem ég held að hafi verið. Ég nefni því til stuðnings a.m.k. að menn geta ekki talið upp eða bent á hverjir eru kjörnir fulltrúar þeirra í borgarstjórn. Mér finnst það miður af því að borgarmálin eru skemmtileg og þau eru áhugaverð. Þar eru alltaf mikil tækifæri til að bæta okkar borg, bæta þjónustuna en að sama skapi halda líka á lofti ákveðnum skyldum borgarbúa sem fara auðvitað samhliða þeim víðtæka rétti sem þeir hafa á hendur borginni.

Virðulegur forseti. Það liggur líka fyrir hér á Alþingi frumvarp hæstv. innviðaráðherra um ný heildarlög um sveitarstjórnarmál. Það liggur fyrir frumvarp um ný sveitarstjórnarlög, frumvarp sem lagt var fram fyrst að ég hygg á síðasta þingi og hefur verið í smíðum í mörg ár í innviðaráðuneytinu en það var lagt fram fyrst á síðasta þingi til kynningar en náði ekki fram að ganga, eðlilega,vegna þess að málið er stórt og umfangsmikið. Það er nú komið aftur inn til þingsins og er í þinglegri meðferð, mælt var fyrir því snemma í haust, í upphafi þings í september. Þá átti ég orðastað við hæstv. innviðaráðherra og spurði hann hver afstaða hans væri til þessa þingmáls míns eða efnis þess og hvort það kæmi til greina af hans hálfu að þingið tæki þetta mál til skoðunar og legði kannski fram breytingu á frumvarpinu. Ég lagði þessa spurningu líka fram á síðasta þingi. Mér finnst a.m.k. jákvætt að greina að hæstv. innviðaráðherra var ekki alveg jafn afdráttarlaus um andstöðu sína í svari til mín á þessu þingi eins og hann var á síðasta þingi. Kannski helgast það af því að á síðasta þingi þegar hann mælti fyrir nýjum sveitarstjórnarlögum þá áttum við fyrir höndum sveitarstjórnarkosningar. Það er auðvitað erfitt að breyta sveitarstjórnarlögum eða breyta nokkru í þessum efnum þegar stutt er til sveitarstjórnarkosninga, þótt þessi breyting sem ég er að leggja til hér myndi aldrei hafa áhrif fyrr en á þarnæsta kjörtímabili. En ég var sem sagt ánægð að heyra það og mér fannst ég ekki greina eins mikla andstöðu við þessa breytingartillögu frá hæstv. innviða ráðherra í dag. Af hverju skyldi enda ráðherra málaflokksins, innviðaráðherra sem fer með sveitarstjórnarmálin, að vera leggjast mjög gegn því að borgarstjórn Reykjavíkur hefði þetta svigrúm sem borgarstjórn Reykjavíkur er núna að kalla eftir?

Þetta frumvarp, næði það fram að ganga, eða það sem ég teldi kannski eðlilegra, að mál hæstv. innviðaráðherra tæki þeirri breytingu sem hér er lögð til í þingmáli mínu, hefur ekki sjálfkrafa áhrif til fækkunar borgarfulltrúa. Það er eftir sem áður mat borgarstjórnar Reykjavíkur, ég legg áherslu á að það verður áfram eftir sem áður mat borgarstjórnar Reykjavíkur eins og annarra sveitarfélaga á því hvernig best er að haga þessum hlutum. En mér finnst það ófremdarástand að búa svo um hnútana að borgarstjórn geti ekki snúið sér þannig að fækka borgarfulltrúum, meti hún það svo með málefnalegum hætti og rökstyðji að það fari betur á því að fækka borgarfulltrúum með einhverjum hætti. Ég vek athygli á því líka að auðvitað getur borgarstjórn sjálf tekið ákvörðun um að hætta að vera með launaða fyrstu varamenn í flokkunum.

Virðulegur forseti. Mér finnst mikilvægt að í þessum efnum þá þurfum við sem hér erum á þinginu aðeins að hefja okkur upp yfir flokkspólitíska hagsmuni. Menn fara ósjálfrátt, það eru ósjálfráð viðbrögð okkar stjórnmálamanna, að fara að vega og meta hvernig einhver lagabreyting sem lýtur að stjórnmálaflokkum komi út fyrir þeirra eigin flokk. Ég veit ekkert hvort það myndi hafa áhrif til fækkunar borgarfulltrúa Miðflokksins, en Miðflokkurinn náði glæsilegum árangri í síðustu kosningum núna í maí, fékk kjörna þrjá borgarfulltrúa, hafði engan borgarfulltrúa áður en fékk þrjá borgarfulltrúa sem eru að standa sig vel að merkja afskaplega vel. Ég kýs að leiða hugann frá því hvort fækkun borgarfulltrúa yfirhöfuð eða almennt myndi hafa sérstök áhrif á Miðflokkinn. Það kann mjög vel að vera að Miðflokkurinn myndi bera skarðan hlut frá borði nái þessi breyting fram að ganga. En við í Miðflokknum teljum hins vegar hyggilegra að líta ekki svo þröngt á málið heldur líta til lengri tíma og til hagsmuna borgarbúa og búa þannig um hnútana að í borgarstjórn sitji borgarfulltrúar sem allir hafa augun á öllum boltum eða sem flestum og geta markað sér einhverja stöðu sem kjörnir fulltrúar gagnvart kjósendum en séu ekki eins og í einhverju hringekjuferðalagi í fjögur ár sem enginn er að fylgjast með.

Virðulegur forseti. Ég legg til að málið fari til hv. umhverfis- og samgöngunefndar að ég hygg til meðferðar að lokinni þessari umræðu. Ég vil nefna það að auk mín standa að þessu frumvarpi hv. þingmenn Bergþór Ólason, Karl Gauti Hjaltason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Þorgrímur Sigmundsson.