sveitarstjórnarlög.
Virðulegur forseti. Jú, þetta er alveg áhugaverð nálgun líka og eitthvað sem ég tel að Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélög ættu að skoða sérstaklega. Ég verð að játa að mér finnst launakerfi Reykjavíkurborgar, þegar kemur að kjörnum fulltrúum, afar ógagnsætt. Ég á mjög erfitt með að átta mig á því hvernig borgarfulltrúafararkaupið er þar. Við þekkjum hvernig þingfararkaupið er; það er bara í lögum og auðvelt að sjá hvernig launakjör þingmanna eru uppbyggð. En það sama er ekki hægt að segja um launakjör borgarfulltrúa. Ég nefndi það samt í ræðu minni að kannski væri erfitt, a.m.k. frá mínum bæjardyrum séð, að tala um að þetta sé hagræðingarmál. Auðvitað sýnir þetta gott fordæmi og allt það og öll svona mál eru jákvæð skref í aðhaldi og í því að fara vel með fé, að fækka fólki sem er að vinna ákveðin störf upp að því marki að við komumst af með færra fólk. En ég tel sjálfsagt, og það er hlutverk borgarstjórnar, að fara yfir þessi mál. Ég veit ekki hvort það væri í þágu lýðræðisins að fjölga borgarfulltrúum eitthvað frekar á takmörkuðum launum og fara að borga mönnum fyrir nefndarsetu. Það er einmitt það sem er svo ógagnsætt í þessu kerfi, það eru greiðslur fyrir nefndarsetur. Ég óttast kannski að ef menn kæmu inn í eitt og eitt mál, eina og eina setu, þá skorti þessa yfirsýn sem ég var að leggja áherslu á að væri kannski markmiðið með fækkun borgarfulltrúa, þ.e. að menn hefðu betri yfirsýn yfir allt heila kerfið.