158. löggjafarþing — 15. fundur,  8. okt. 2026.

sveitarstjórnarlög.

59. mál
[15:47]
Horfa

Flm. (Sigríður Á. Andersen) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það verður að hafa í huga að borgarkerfið og sveitarstjórnarstigið skiptast í borgarstjórn og borgarráð og í borgarráði eru allar meginákvarðanir í raun teknar. Það má velta því fyrir sér að borgarstjórn fundar einu sinni eða tvisvar í mánuði og borgarráð eitthvað svipað, það er ekki einu sinni í viku. Það er því ansi vel í lagt, finnst mér, að vera með 23 borgarfulltrúa á fullum launum sem funda með þessum hætti. Ég horfi þó ekki fram hjá því að menn þurfa auðvitað að sinna nefndarsetum og slíku, og menn gera það. En ég legg bara áherslu á að það er borgin sjálf sem þarf að meta þetta og hún verður að hafa þetta svigrúm til að fækka, kjósi hún að gera það.