sveitarstjórnarlög.
Virðulegi forseti. Ég ítreka að kannski er tíma okkar ekki vel varið í að ræða kjör borgarfulltrúa. En hér erum við að ræða fjöldann og í því samhengi má benda á að það var fyrsta verk nýs meiri hluta í Reykjavík núna að fjölga þeim sem geta setið sem aðalmenn í nefndum og ráðum borgarinnar, þ.e. eftir þessa fjölgun sem varð var í raun sá hópur takmarkaður við aðalmenn og fyrstu varaborgarfulltrúa sem gætu setið sem aðalmenn í þessum nefndum. En það var opnað alveg þannig að það er búið að stækka hópinn og stækka þá hópinn sem er launaður.
Eftir stendur spurningin: Hvað er góð tala? Ég held að það sé í raun fjöldi þeirra sem kallaðir yrðu til verka. Auðvitað hefur þetta líka áhrif á það hvort minni flokkar komast yfir höfuð inn. Ég held að það hafi alltaf verið hluti af þessari umræðu í gegnum tíðina. (Forseti hringir.) Sjálfstæðisflokkurinn var t.d. með meiri hluta borgarfulltrúa lengst af á síðustu öld með minni hluta atkvæða (Forseti hringir.) vegna þess að borgarfulltrúar voru það fáir að mörg atkvæði féllu dauð niður.