158. löggjafarþing — 15. fundur,  8. okt. 2026.

endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.

88. mál
[17:00]
Horfa

Flm. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við höfum auðvitað býsna skýr fordæmi úr ofanflóðunum varðandi hlutverk ofanflóðanefndar og í raun valdheimildir til að segja hvar fólk megi búa og hvar ekki. Sjávarflóðin eru dálítið annars eðlis. Það þarf ekki að verða mannskaði ef viðvörunarkerfi er í lagi. Það er meira spurning kannski um eignatjón, þannig að kannski eru aðeins önnur sjónarmið sem eiga við. Ég held að það hljóti að vera hluti þessarar vinnu að fara yfir hvað er líkt og hvað er ólíkt. Ég held að margt í umgjörðinni, fjármögnuninni, áhættumatinu og að hafa skýrara ábyrgðarhlutverk sé líkt en að einhverju leyti er þetta eðlisólíkt varðandi þá vá sem er fyrir dyrum og í hverju hún felst. Sveitarfélögin hafa mjög ríkt hlutverk, bæði gætu haft það hlutverk að meðfjármagna eitthvað eins og í Flóanum en líka í gegnum skipulagsmálin og skipulagsvaldið; að setja skilmála sérstaklega á viðkvæmum svæðum eða segja bara að á tilteknum svæðum byggi fólk á sína eigin ábyrgð. Þetta er svolítið viðkvæm umræða og ég held að við þurfum að fara í gegnum hana á grundvelli gagna og þekkingar sem að einhverju leyti er til, m.a. hjá sveitarfélögunum, en að einhverju leyti kannski ekki.