158. löggjafarþing — 16. fundur,  13. okt. 2026.

Notkun tóbaks og nikótínvara meðal barna og ungmenna.

[14:29]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka kærlega fyrir þessa umræðu. Það hefur vakið sérstaka athygli og langt út fyrir landsteinana hversu góðum árangri Íslendingar hafa náð í baráttunni gegn reykingum unglinga. Samkvæmt ESPAD-rannsókninni frá 2024 höfðu 13% íslenskra 15–16 ára ungmenna prófað sígarettur samanborið við 32% að meðaltali í Evrópu. Aðeins 4,2% ungmenna höfðu reykt síðastliðna 30 daga. Þetta er árangur sem við eigum að vera stolt af.

En nú blasir við ný áskorun eins og hér er verið að ræða, nikótínpúðar. Þeir eru oft auglýstir og seldir sem saklaus og þægileg neysluvara en nikótín er ávanabindandi og getur haft áhrif á þroska heilans, athygli og nám eins og hér hefur komið fram. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur varað við aukinni útbreiðslu slíkra vara meðal ungs fólks. En hvernig getum við brugðist við þessari þróun? Að mínu mati eigum við að leggja áherslu á fræðslu og höfða til ábyrgðar fólks. Það er að mínu mati mikilvægt að ungt fólk sé upplýst og skilji áhættuna sem fylgir því að nota slíka púða þannig að þau geti tekið sjálfstæða og upplýsta ákvörðun um að nota eða nota ekki slíka vöru. Bann eða takmarkanir umfram það sem nú er á sölu leysa að mínu mati og okkar í Viðreisn ekki vandann. Við þurfum markvissa fræðslu, opinská samtöl og foreldra, kennara, þjálfara og aðra fullorðna sem sýna gott fordæmi. Rannsóknir á forvörnum, m.a. samantekt bandarísks starfshóps frá 2020, benda til þess að fræðsla og ráðgjöf geti dregið úr því að ungmenni byrji að nota tóbaksvörur.

Frú forseti. Við eigum ekki að mæta ungmennum með hræðslu og skömm heldur þekkingu, virðingu og trausti. Ég treysti sonum mínum til að taka sjálfstæðar ákvarðanir með því að upplýsa þá og fræða og að vera góð fyrirmynd. Það er mitt hlutverk sem ábyrgt foreldri.