Notkun tóbaks og nikótínvara meðal barna og ungmenna.
Frú forseti. Það er vert að skoða það hvers vegna stór hluti íslenskra ungmenna hefur ánetjast nikótíni. Þetta er óheillaþróun og afturför eftir að gríðarlega góður árangur hafði náðst í tóbaksvörnum. Árangur í tóbaksvörnum spratt ekki upp úr engu. Hann náðist vegna mikillar fræðslu og setningar laga og fyrir hvatningu baráttufólks á borð við Siv Friðleifsdóttur. Talsverðan tíma tók að setja lagaramma utan um markaðssetningu á nikótínvörum. Markaðssetning hafði fyrst og fremst beinst að ungmennum og eftirlit og leyfismál voru í lausu lofti. Í stað þess að setja nikótínvörur undir sama regluverk og gilti um tóbak í umsjá heilbrigðisnefndar sveitarfélaga voru mál nikótínvara hálfmunaðarlaus hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Neytendastofu. Seinagangur og sleifarlag í viðbrögðum stjórnvalda við markaðssókn sölumanna ávanabindandi efna sem beindist að ungmennum var ekki nein tilviljun, frú forseti.
Aðgerðaleysið var bein afleiðing af pólitískri baráttu Sjálfstæðisflokksins. Hjá ungum sjálfstæðismönnum urðu nikótínvörurnar táknmynd baráttunnar fyrir frelsi, rétt eins og baráttu þeirra fyrir að koma brennivíni í búðirnar. Á sama tíma láta forystumenn Sjálfstæðisflokksins sér í léttu rúmi liggja hvort jafnræði ríki við nýtingu fiskimiðanna og skella skollaeyrum við kröfum um að helsta útflutningsafurð þjóðarinnar verði verðlögð á frjálsum markaði þar sem jafnræði ríkir. Ein afleiðing af svokallaðri baráttu Sjálfstæðisflokksins fyrir frelsi er að nú er talið að stór hluti ungmenna sé háður nikótínpúðum. Sem betur fer heyrir maður í umræðunni að það er komin hér ábyrgari rödd og þá vil ég kalla til sögunnar ræðu hv. þm. Jóns Péturs Zimsens en þar vottaði fyrir meiri ábyrgð en hefur verið í umræðunni um þessi mál. Og ég tek undir með hæstv. ráðherra: Fíkn er ekki frelsi.