Notkun tóbaks og nikótínvara meðal barna og ungmenna.
Virðulegur forseti. Það er umhugsunarefni hversu mikið aðgengi að nikótínpúðum er hér á landi. Notkun þeirra tengist ekki því markmiði að draga úr reykingum enda er markhópur seljenda m.a. ungt fólk. Þessi fyrirtæki reyna eftir fremsta megni að ná til fólks sem ekki glímir við nikótínfíkn. Bragðefni er notað til þess að gera þetta gott og spennandi en nikótín er talið vera á meðal sterkustu fíkniefna hvað fíkn varðar og mjög ávanabindandi. Í samtölum mínum við ungt fólk sem hefur ánetjast þessum púðum hafa margir lýst reynslu sinni af því að hætta notkun þeirra. Langflestir sögðust hafa reynt að hætta og ekki bara einu sinni, ekki tvisvar og ekki þrisvar.
Virðulegur forseti. Flestir þeirra sögðust hafa reynt að hætta fimm sinnum eða oftar. Jú, ég hef rætt við einstaklinga sem hefur tekist að hætta notkun efnisins en aukaverkanir eins og þunglyndi, kvíði og eirðarleysi eru dæmi um fráhvarfseinkenni sem einstaklingar glíma við við að hætta notkun þess.
Það er með ólíkindum að á meðan aðgengi að nikótíntyggjói er takmarkað, aðeins selt í lyfjabúðum, eru púðar seldir mjög víða. Í nikótíntyggjói eru 2–4 milligrömm af nikótíni á meðan í púðum gætu verið einhver 20 milligrömm, jafnvel meira, eða tífalt meira magn. Tyggjóið er vísindalega rannsakað og því er ætlað að draga úr reykingum og draga úr fíkninni. Það er samfélagsleg skylda okkar að huga að lýðheilsu fólks og gera fólki það sem auðveldast að huga að heilsu sinni og heilbrigðum lífsstíl. Ég tel að aðkallandi þörf sé til þess að takmarka verulega aðgengi að nikótínpúðum og fækka sölustöðum verulega. Ég spyr einnig hvort það sé ástæða til að gera meiri kröfur til leyfisveitinga til sölu á þessum vörum. Ég fagna því að hæstv. heilbrigðisráðherra ætli að grípa inn í þennan markað með frumvarpi í vetur. Það verður að bregðast við.