Notkun tóbaks og nikótínvara meðal barna og ungmenna.
Frú forseti. Ég held að margt forvitnilegt hafi komið hérna fram í dag. Kjarni vandans er auðvitað þessi breytta staða með nikótínpúðana. Hérna áður fyrr var það mjög verðugt markmið reykingarmanna og þeirra sem höfðu ánetjast munntóbaki að hætta því eins fljótt og auðið yrði. Mér sýnist eins og hvatinn, eftir að nikótínpúðarnir komu til, sé orðinn töluvert veikari vegna þess að þetta hefur ekki jafn viðbjóðslega íþyngjandi áhrif á líf þitt og hitt, en þetta er hins vegar fíkn og flestum kemur saman um að menn vilji hætta þessu. En þetta er auðvitað ákveðin eðlisbreyting í umræðunni og mjög verðug spurning hvernig stjórnvöld takast á við þetta. Ég veit ekki hvort ég taki undir með hv. þm. Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um að í þessu sambandi hafi bönn og skattar aldrei haft nein áhrif. Augljóslega hafa íþyngjandi tóbaksskattar og annað eins auðvitað hreyft málinu á einhvern hátt í gegnum tíðina þannig að það er ekki hægt að útiloka að það hafi einhver áhrif. En ég velti fyrir mér í þessu sambandi hvaða áhrif bann gagnvart alls konar bragðtegundum muni raunverulega hafa. Það væri forvitnilegt að vita hvort einhver gögn styðji þá ákvörðun, þ.e. hvort þetta hafi raunverulega fært þetta í aðra átt, og svo aftur hvort þetta sé óeðlilega íþyngjandi gagnvart því fullorðna fólki sem vill bara hafa eitthvert bragð af þessum nikótínpúðum sem það telur sennilega ekkert skaða sitt líf.
Hitt er síðan önnur spurning í þessari umræðu svona pólitískt hvort hæstv. ráðherra geti mögulega varpað ljósi á það í sinni umfjöllun hérna í lokin hvort hún telji að þetta bann, bragðbann t.d., njóti stuðnings innan ríkisstjórnarinnar, vegna þess að ég komst ekki hjá því að heyra alla vega hv. þingmann Viðreisnar lýsa sig andsnúinn banni almennt á þessu sviði. Hvort hv. þingmaður var beint að vísa til áforma heilbrigðisráðherrans og þar með mögulega að lýsa afstöðu flokksins í heild veit ég ekki. Ég hef heyrt ungliðahreyfingu sama flokks tala á sambærilegum nótum. Er hæstv. ráðherra e.t.v. einmitt að vekja athygli á sinni afstöðu með þessum áformum eða hafa menn raunverulega trú á að þetta gangi pólitískt í gegnum ríkisstjórn og síðan Alþingi? Eða erum við að eyða tíma okkar?