158. löggjafarþing — 16. fundur,  13. okt. 2026.

Notkun tóbaks og nikótínvara meðal barna og ungmenna.

[14:43]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V):

Frú forseti. Rafrettur og nikótínpúðar hafa breytt landslaginu á undanförnum árum og stöndum við frammi fyrir annars konar lýðheilsuáskorunum í þeim efnum. Fyrirliggjandi upplýsingar sýna okkur að notkun hefur aukist meðal þeirra sem yngstir eru og þessi þróun ógnar bæði líkamlegum og andlegum þroska ungs fólks. Á sama tíma blasir við okkur nýr og hættulegur veruleiki á samfélagsmiðlum þar sem áhrifavaldar og vinsælir tónlistarmenn eru í auknum mæli farnir að sýna reykingar og nikótín í sínu efni og það hefur bein áhrif á unga fólkið okkar. Þarna liggur kjarni vandans sem við þurfum að mæta af festu.

Stefna Viðreisnar er skýr. Við viljum skynsamlegt og fyrirsjáanlegt regluverk en okkur hugnast ekki að beita íþyngjandi boðum og bönnum. Reynsla og rannsóknir sýna okkur skýrt að bann eitt og sér dregur sjaldnast úr líkum á neyslu. Þvert á móti getur það gert vöruna enn meira spennandi og er því bæði ómarkviss og óhófleg leið til að stýra neyslu.

Viðreisn vill sjá heilbrigt umhverfi þar sem fyrirtæki starfa samkvæmt sanngjörnu regluverki en áhersla okkar í þessum málum á að vera þar sem áhrifin eru mest: að sporna gegn duldum auglýsingum og þrýstingi frá samfélagsmiðlum ásamt öflugri fræðslu og forvörnum. Þannig styrkjum við raunverulegar varnir ungmenna. Bann við litríkum umbúðum eða nikótíni með ávaxtabragði leysir ekki vandann. Lausnin felst ekki í því að banna allt og loka augunum heldur í því að treysta fólki fyrir eigin lífi og heilsu. Við þurfum að beina athyglinni að unga fólkinu okkar og valdefla það með því að veita því réttu verkfærin til að styðja við sjálfstæði þess þannig að ungir einstaklingar geti tekið upplýsta ákvörðun um að hafna nikótínneyslu í stað þess að láta stjórnast af tískustraumum eða markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Eflum upplýsingalæsi og gagnrýna hugsun, fræðum ungmennin um áhrif nikótíns og beinum sjónum okkar að hinum raunverulega vanda.