Notkun tóbaks og nikótínvara meðal barna og ungmenna.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka aftur fyrir þær umræður sem hafa átt sér stað. Ég held að það sé þrennt sem þarf að fara saman. Í fyrsta lagi er það stórefling á forvörnum og þar langar mig að taka undir með hv. þm. Ingveldi Önnu Sigurðardóttur. Ég held að allir muni þessar auglýsingaherferðir sem virkuðu á ákveðinn hátt og þarf að skoða aftur.
Í annan stað tel ég mikilvægt að við skoðum þá leið sem önnur ríki hafa farið sem snýr að því að takmarka aðgengi. Ég velti því fyrir mér hvort það sé eitthvað sem hægt er að fara í.
Í þriðja lagi finnst mér vanta í alla þessa umræðu, þegar verið er að tala um frelsi til að dreifa þessu sem mest og að það eigi bara að vera undir börnum komið að passa sig og prófa þetta ekki, að þetta er ekki súkkulaði. Þetta er vara sem þú verður gjörsamlega háður. Fullorðið fólk getur ekki hætt að reykja þó að það reyni margsinnis. Að setja ábyrgðina á 14–15 ára barn og segja: Heyrðu, þú skalt bara bera ábyrgð á því að passa þig á þessu efni — þetta er ekki súkkulaði eða eitthvað sem er auðvelt að hætta að borða. Þetta er eitt mest ávanabindandi efni í heimi. Aðgerðir þurfa eðlilega að taka mið af því. Forvarnir, aðgengi — og ég vil að skattlagning eða kostnaðurinn sé settur í samhengi við það sem ég kom inn á áðan, að þetta hefur áhrif á heilaþroska barna. Þetta hefur áhrif á það hvernig þeim gengur í skólanum og þeim gengur ekki nógu vel í skólanum. Við erum að sjá það. Þetta hefur líka áhrif á hegðun. Við erum líka að sjá aukin ofbeldistilvik í okkar samfélagi og svona mætti lengi áfram telja. Setjum þetta líka í samhengi við stóru myndina og þann kostnað sem við erum að sjá að þessi neysla hefur mögulega áhrif á. (Forseti hringir.) Það er ekki hægt að horfa á þetta bara út frá nikótínpúðum og frelsi fólks. Þetta er stærra mál sem við þurfum að vanda okkur við og ég hvet ráðherra til dáða í þeim efnum og okkur öll.