Notkun tóbaks og nikótínvara meðal barna og ungmenna.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svörin og öðrum þingmönnum fyrir umræðuna. Það sem mér finnst mikilvægt að við tökum með okkur úr þessari umræðu er að nikótínmarkaðurinn hefur breyst og forvarnir og regluverk þurfa að þróast með honum. En við þurfum, eins og hæstv. heilbrigðisráðherra kom inn á, að horfa sérstaklega til markaðssetningarinnar; litríkar dósir, sælgætis- og ávaxtabragð og umbúðir sem geta höfðað til barna og ungmenna. Það hlýtur að vekja upp spurningar um hvort við séum að gera nóg til að koma í veg fyrir að ný kynslóð ánetjist nikótíni. Við megum heldur ekki gleyma hversu hættulegt nikótín er, sérstaklega hættulegt börnum og ungmennum, og þegar ég segi við þá á ég líka við okkur í þingsal. Þetta er afar ávanabindandi efni sem getur haft áhrif á þroska heilans og einbeitingu, skap og hvatastjórnun.
Mig langar líka að segja að það veldur virkilegum áhyggjum hversu eðlileg notkun þessara púða virðist vera orðin í daglegu lífi ungs fólks. Hættan er sú að börn og ungmenni fari að líta á nikótínnotkun sem sjálfsagðan hlut án þess að gera sér grein fyrir því hversu erfitt getur reynst að losna undan fíkninni. Við skulum athuga að þessir púðar eru litlir, lítt áberandi og það er auðvelt að nota þá nánast hvar sem er. Það þarf hvorki að kveikja í þeim né fara út til að nota þá eins og sígaretturnar. En markmiðið hlýtur fyrst og fremst að vera að sem fæst börn og ungmenni byrji að nota nikótín. Þar skipta fræðsla og forvarnir öllu máli en líka skýrar reglur um sölu, markaðssetningu og aðgengi að þessum vörum.
Mig langar að lokum að spyrja hæstv. ráðherra hvaða breytingar séu fyrirhugaðar á eftirliti með smásölu tóbaks og nikótínvara og hvernig hún telji að þær breytingar geti stuðlað að því markmiði að draga úr notkun þessara vara meðal barna og ungmenna.