158. löggjafarþing — 16. fundur,  13. okt. 2026.

varnir gegn mengun hafs og stranda.

203. mál
[16:15]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004, sem lýtur að leyfisveitingum vegna vísindarannsókna í hafi. Markmið frumvarpsins er að tryggja skýran lagaramma og skilvirka málsmeðferð um heimildir til að stunda rannsóknir í hafinu umhverfis Ísland á sviði loftslagsverkfræði, eða á ensku, með leyfi forseta, „marine geoengineering“.

Í baráttunni gegn loftslagsbreytingum hefur víða um heim vaknað aukinn áhugi á aðferðum sem miða að því að hafa áhrif á náttúrulega ferla í hafinu, t.d. í því skyni að auka kolefnisbindingu. Þar má nefna aukningu á basavirkni hafsins, ræktun stórþörunga og dreifingu næringarefna á borð við járn, köfnunarefni og fosfór til að örva frumframleiðni. Sumar þessara aðferða kunna að geta lagt sitt af mörkum en þekking á virkni þeirra er enn takmörkuð og fyrir eyríki sem á allt undir heilbrigðu hafi skiptir miklu að um þær gildi traustar reglur. Samkvæmt 9. gr. laga nr. 41/1979, um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn, eru vísindalegar rannsóknir háðar samþykki stjórnvalda en framkvæmd þeirra laga hefur verið á forræði utanríkisráðuneytisins og miðast einkum við rannsóknir erlendra ríkja og alþjóðastofnana. Utanríkisráðuneytið hefur því þurft að reiða sig á umsagnir fagstofnana, m.a. Umhverfis- og orkustofnunar, og mat okkar er að það sé skilvirkast og affarasælast að færa þessa stjórnsýslu, stjórnsýsluna vegna starfsemi er lýtur að loftslagsverkfræðilegum rannsóknum, til Umhverfis- og orkustofnunar í ljósi fagþekkingar þeirrar stofnunar þar sem hún fer m.a. með loftslagsmál og mengunarvarnir. Það er alveg ljóst að aukin aðsókn eða eftirspurn er eftir leyfum vegna slíkra rannsókna og mikilvægt að lög og reglur séu skýr til að tryggja skilvirkni í afgreiðslu mála og þess vegna verður lagaumgjörðin að vera skýr og eftirlitsheimildirnar skýrar. Við verðum að hafa röð og reglu á þessum hlutum.

Í þessu frumvarpi er lögð til sú meginbreyting að Umhverfis- og orkustofnun geti veitt leyfi fyrir vísindalegum rannsóknum er varða loftslagsverkfræðilegar aðgerðir í hafi í rannsóknarskyni. Ákvæðið byggir á breytingum á Lundúnabókuninni og gerir kröfu um að slíkar rannsóknir séu lögmætar vísindarannsóknir og háðar mati á áhrifum samkvæmt matsviðmiðum sem samþykkt hafa verið af samningsaðilum og leyfi Umhverfis- og orkustofnunar. Um er að ræða loftslagsverkfræðilegar rannsóknir í hafi sem m.a. er ætlað að vinna gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum. Með því er tryggt að Ísland uppfylli alþjóðlegar skyldur sínar um verndun hafsins gegn mengun sem getur hlotist af slíkum aðgerðum.

Meginregla í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda er sú að óheimilt er að varpa efnum og hlutum í hafið. Umhverfis- og orkustofnun getur hins vegar veitt leyfi fyrir því að ákveðnum hlutum og efnum sé varpað í hafið. Hvort tiltekin framkvæmd teljist varp í hafið fer eftir aðstæðum hverju sinni og t.d. telst það ekki varp í hafið ef efni eða hlutum er komið fyrir í hafinu í öðrum lögmætum tilgangi en að farga þeim. Fleiri tilvik geta einnig fallið utan hugtaksins.

Frumvarp þetta er samið af starfshópi þriggja ráðuneyta, þ.e. umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, utanríkisráðuneytis og atvinnuvegaráðuneytis, auk fulltrúa frá Umhverfis- og orkustofnun. Starfshópurinn kallaði líka til samráðs Hafrannsóknarstofnun og Landhelgisgæslu Íslands og tók mið af athugasemdum þeirra. Drög að frumvarpinu voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í sumar og fjórar umsagnir bárust. Þær lýstu allar stuðningi við meginmarkmið frumvarpsins og lögðu áherslu á mikilvægi þess að skapa skýran, faglegan og fyrirsjáanlegan ramma um þessar rannsóknir. Í kjölfarið var frumvarpinu breytt, m.a. með því að kveða skýrt á um bann við hagnýtingu í atvinnuskyni og bæta við heimild til að krefjast tryggingar.

Frumvarpið hefur engin eða óveruleg áhrif á ríkissjóð, enda er gert ráð fyrir að umsækjendur beri kostnað af leyfisveitingum og eftirliti sem verður innheimtur af Umhverfis- og orkustofnun.

Ég hef nú rakið meginefni þessa frumvarps og legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hæstv. umhverfis- og samgöngunefndar.