158. löggjafarþing — 16. fundur,  13. okt. 2026.

almannatryggingar.

205. mál
[16:44]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar yfirferð yfir málið. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í af því að hér er ekki dregið úr yfirlýsingum um hvað hér sé verið að setja í lög en þó er ekki gert ráð fyrir þessu fjármagni, sem ég held að áhrifamatið sýni að losi einhverja 2 milljarða, í fjárlögunum. Ég held að það sé mjög eðlileg spurning til hæstv. ráðherra að óska eftir skýringum á því hvers vegna slík fjárhæð er ekki inni í fjárlögunum. Það væri áhugavert að heyra útskýringar hæstv. ráðherra á því.