158. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2026.

erfðafjárskattur og tekjuskattur.

9. mál
[15:03]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og ræðu hv. þm. Jóns Péturs Zimsens. Þó voru stórar fullyrðingar og svona dramatískar fullyrðingar um að fólk missi, já, blóð, svita og tár, held ég að hafi verið sagt, að fólk missi allt sitt við þessa skattlagningu en (JPZ: Það sagði ég nú ekki.) Nei, ókei, afsakið, ég dreg þetta til baka, ekki allt sitt en dramatísk orð voru notuð. Hv. þingmaður getur kannski farið yfir þau aftur ef hann hyggst gera það. En við þurfum aðeins að horfa á staðreyndir málsins. Eins og hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir kom inn á í sínu andsvari þá verður maður, ef taka á norræna samanburðinn, að taka aðra skattstofna og skatttekjur líka. Hv. þingmenn voru að ræða Noreg áðan en Noregur skattleggur auð vissulega árlega. Ísland gerir það ekki með sambærilegum hætti með árlegum auðlegðarskatti eða neinu slíku og það gengur auðvitað ekki að taka afnámið úr norska kerfinu og tala ekki um þennan auðlegðarskatt sem dæmi. Ef menn vilja ræða t.d. sænska leið þurfum við vissulega líka að ræða allt kerfið, skattlagningu fjármagnstekna sem dæmi og árlegan skatt á fjárfestingarsparnað líka. Í Svíþjóð er almenn fjármagnstekjuskattlagning um 30%. Til samanburðar er hún 22% hér á Íslandi.

Mig langar því að spyrja hv. þm. Jón Pétur Zimsen, við höfum ekki enn þá fengið svar við því: Hvaða tekjur eiga að koma á móti eða hvaða niðurskurður á að koma á móti? Réttindi opinberra starfsmanna hafa verið nefnd. (Forseti hringir.) Mig minnir að það hafi verið kannski 7 milljarðar, eitthvað slíkt, sem myndu sparast þá árlega, en þessi upphæð er um 14 milljarðar. Hvar eru tekjurnar á móti? Við viljum ekki reka ríkissjóð hér með stórkostlegum halla.