erfðafjárskattur og tekjuskattur.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Rögnu Sigurðardóttur fyrir ágætisandsvar. Ég svaraði því hér áðan í andsvari við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur að það hefði verið auðlegðarskattur hér á Íslandi. Hann skilaði afar litlu en kannski fullnægði þörfum ákveðinna einstaklinga fyrir að fá útrás fyrir að þarna væri verið að taka þetta ofurríka fólk og láta það einhvern veginn gjalda fyrir það að vera ríkt. Það má vel vera að þetta sé eitthvað sem menn vilji en sjálfur er ég á því að það gerist venjulega ekki af sjálfu sér að fólk skapi sér verðmæti og ef fólk hefur gert það einu sinni er það líklegt til að halda því áfram. Og ef við stækkum kökuna, við stækkum allt í kringum verðmætasköpun á Íslandi, þá einfaldlega stækkar skattsporið sjálfkrafa. Þannig stækkar kakan og ég veit að hv. þingmaður áttar sig á því. 14 milljarðar, við getum farið í hagræðingartillögurnar og skoðað ýmislegt sem gæti hjálpað okkur en almennt held ég að ef við leysum úr læðingi sköpunarkraft fólks og heftum hann ekki með skattpíningu þá verði 14 milljarðar bara tala sem verður allt of lítil. Við munum fá miklu, miklu hærri heildarskatttekjur í viðbót og það er ekki bara það að menn geti teiknað eitthvert núll á blað heldur yrði talan þar í plús upp á tugi milljarða ef við leyfðum fólki að skapa sín verðmæti og það fengi að halda eftir verðmætum sjálft og halda áfram að fjárfesta, ráða fleira fólk í vinnu og halda hjólum atvinnulífsins og hagkerfisins gangandi.