158. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2026.

erfðafjárskattur og tekjuskattur.

9. mál
[15:08]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir svarið. Ég hef skilning á hugsjóninni og er sammála því og ég held að við getum öll verið sammála um það hér í þessum þingsal að það er mikilvægt að stækka kökuna. Ný atvinnustefna lýtur m.a. að þessu, að auka verðmætasköpun í landinu. Við þurfum samt sem áður að reikna okkur niður á það hvernig við ætlum að skila hallalausum fjárlögum, sem hefur ekki tekist hér í yfir átta ár. Uppsafnaður halli er 866 milljarðar á þessum síðasta tæpa áratug þannig að það er verk að vinna sem ég held að við þurfum öll að geta sammælst um hér. Og auðvitað er hægt að koma með kannski svona ákveðnar hugmyndir um hvernig eigi að bæta upp þetta tekjutap sem yrði ef það yrði fallið frá þessari skattlagningu.

Ég get ekki tekið undir með hv. þm. Jóni Pétri Zimsen að þetta sé skattpíning. Og eins og hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni hér áðan, eða andsvari við andsvari, minnir mig, erum við nú ekki hvað efst þegar kemur að skattlagningu í samanburði OECD. Það hefur verið áhersla þessarar ríkisstjórnar að loka glufum í skattkerfinu og fækka undanþágum en það er auðvitað ekki verið að fara í almenna tekjuskattshækkun eða neitt slíkt eða hækkun skatta á fjármagnstekjur eða neitt svoleiðis.

Spurning mín til hv. þingmanns er þá núna að lokum: Telur hv. þingmaður að það megi skoða skattkerfi Norðurlandanna fyrst frummælandi og hv. þingmaður hafa í raun og veru talað fyrir norræna skattlagningarkerfinu, til að mynda með auknum sköttum á fjármagnstekjur, skatti á hagnað? Það er í (Forseti hringir.) Finnlandi skattur á hlutabréf sem erfast, að mig minnir, þannig að maður verður að bera kerfin saman heildstætt.