endurskoðun á tímabili viðmiðunargreiðslna fæðingar- og foreldraorlofs.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og fagna því að hún sé tilbúin að styðja góð mál sem ég tel þetta mál vera og einnig það mál sem ég hef lagt fram. Ég viðurkenni líka að ég skoðaði það sem hv. þingmaður var að velta fyrir sér, að stytta bara viðmiðunartímabilið, og hv. þingmaður kom kannski inn á í ræðu sinni þá galla sem hefur verið bent á í þeim tilfellum, hvort það geti verið vinnuhvetjandi og þar af leiðandi ekki heilsueflandi heldur öfugt fyrir verðandi mæður.
Svo þekkjum við mörg svona upphaf þess þegar þetta kerfi var sett á að það voru ákveðnir aðilar, og þá sérstaklega feður, sem höfðu tækifæri til þess að þéna mjög mikið á skömmum tíma sem hafði áhrif á Fæðingarorlofssjóð. Þess vegna fannst mér brýnt að bregðast við með þeim hætti sem ég gerði í þessu frumvarpi sem liggur nú fyrir. En ég get heils hugar tekið undir að það er fínt að skoða viðmiðunartímabilið í heild sinni þannig að ég vil í rauninni bara hvetja til þess að hv. velferðarnefnd, og ég hygg að hv. þingmaður sitji í þeirri nefnd, taki þessi mál til skoðunar því að við vitum að þetta er svo stuttur tími sem fólk er í því að eignast börn.
Og fyrir fólk sem er í þessari stöðu núna, að horfa á þingsályktunartillögu sem segir að ráðherra eigi að skila tillögum 1. október 2027, vonandi myndi það gerast en ég skal viðurkenna að það hefur bara alls ekki oft gerst. Ég man bara ekki nein dæmi þess að slík þingsályktunartillaga hafi raunverulega skilað því og svo tekur tíma fyrir frumvarp að fara í gegn. Þá vil ég bara hvetja þá sem vilja raunverulega bregðast við núna til að bregðast við þessu frumvarpi, fjalla efnislega um það, óska strax eftir umsögnum frá viðkomandi ráðuneyti, kostnaðarmeta á því kosti og galla, hvort það eigi að gera einhverja hluti aðeins öðruvísi eða hvort við getum sammælst um að gera þetta núna þó að við gerum meira seinna. Því við vitum að allar framfarir í þessu kerfi hafa líka alltaf verið svona ákveðin skref. Þannig að ég bara ítreka að ég fagna þessari þingsályktunartillögu og vænti þess og óska eftir góðum stuðningi við málið þegar það kemur hér til meðferðar þingsins.