158. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2026.

endurskoðun á tímabili viðmiðunargreiðslna fæðingar- og foreldraorlofs.

73. mál
[16:29]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og vil líka ítreka að þó að ég tali hér um fæðingartíðni og hún sé ákveðið áhyggjuefni út frá hagstjórninni, öldrun þjóðarinnar — við þurfum fleiri vinnandi hendur þegar við eldumst og þurfum að nýta meiri heilbrigðisþjónustu og velferðarþjónustu sem kostar peninga skattgreiðenda — þá þurfa líka að vera einhverjir sem eru að vinna og búa til auðæfi. Það er bara kaldur veruleiki. Þá ætla ég líka að tala fyrir því, þar sem ég er nú mikil frelsismanneskja, að ég tala fyrir frjósemisfrelsi og ég vil alls ekki að orðræða mín túlkist einhvern veginn með þeim hætti að konum beri að eignast svo og svo mörg börn eða eignast börn yfirhöfuð. Það sem ég hef aftur á móti talað fyrir er að hið opinbera geri barnafjölskyldum frekar auðvelt um vik en erfitt, en frelsi hvers og eins til þess að ákveða hvort hann eignist börn eða ekki á að sjálfsögðu að vera til staðar.

Hv. þingmaður spyr mig varðandi þennan sjálfstæða rétt og hvort gefa eigi hann frjálsan og hv. þingmaður hefur kannski ekki heyrt alveg nógu mikið af ræðum mínum um þessi mál í gegnum tíðina. En sú sem hér stendur er femínískur kapítalisti og ég hef stutt mjög þennan sjálfstæða rétt foreldra, þ.e. að báðir foreldrar hafi sjálfstæðan rétt til töku fæðingarorlofs. Ég hef haft ákveðinn skilning á þeim sjónarmiðum sem hafa komið upp eftir að við lengdum fæðingarorlofið varðandi sveigjanleikann og ég hef velt því fyrir mér, þegar og ef við stígum þau skref að lengja fæðingarorlofið enn frekar, hvernig við eigum að horfa til þess, hvort það eigi að halda áfram að vera 50/50 með einhverjum smá möguleika á yfirfærslu eða ekki og ég held að það sé eitthvað sem við þurfum að setjast yfir. En eins og ég nefndi hér áðan þá held ég að þetta sé eitt af þeim kerfum sem hafa tryggt okkur þá sögulegu staðreynd að Ísland skorar hæst í jafnréttismálum ár eftir ár eftir ár. Og í þessu felast ofboðsleg lífsgæði fyrir unga feður að fá og eiga rétt á að vera með börnum sínum í fæðingarorlofi.