afstaða innviðaráðherra til bókunar 35.
Virðulegi forseti. Skiptar skoðanir eru á frumvarpi hæstv. utanríkisráðherra um bókun 35, ekki einungis á meðal almennings heldur einnig á meðal ráðherra í hæstv. ríkisstjórn. Hæstv. utanríkisráðherra telur frumvarpið vera mikið réttlætismál á meðan hæstv. innviðaráðherra fullyrðir að frumvarpið brjóti gegn stjórnarskránni. Hingað til virðist afstaða hæstv. innviðaráðherra hafa vinninginn innan ríkisstjórnarinnar, enda málið enn óklárað hér á þinginu og komst ekki til 2. umræðu á síðasta þingi og það þrátt fyrir að meiri hlutinn hafi vitað að málið færi til EFTA-dómstólsins hlyti það ekki afgreiðslu. Af ummælum hæstv. innviðaráðherra má skilja að honum þyki það ekki slæmt, heldur þvert á móti réttur farvegur málsins, þ.e. að það fari til EFTA-dómstólsins.
Í óundirbúnum fyrirspurnatíma 13. júní árið 2025 sagði hæstv. ráðherra orðrétt, með leyfi forseta:
„Ég hef verið þeirrar skoðunar að EFTA-dómstóllinn ætti að útkljá í samningsbrotamáli ágreining um hvort 3. gr. EES-laganna væri fullnægjandi fyrir Ísland til að tryggja einsleitni reglna á EES-svæðinu.“
Sömu afstöðu ítrekaði hæstv. ráðherra í sama dagskrárlið þann 25. september sama ár. En nú er málið komið til dómstólsins og engin vilyrði komin frá ESA um afturköllun þess, hljóti frumvarpið um bókun 35 afgreiðslu. Þvert á móti kemur skýrt fram af hálfu ESA að málið sé einmitt í höndum dómstólsins sem muni úrskurða um hver niðurstaðan verður. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvað hann telji rétt að gera núna. Vill hann afgreiða frumvarpið um bókun 35 hér á þinginu núna í haust eða telur hann rétt að ljúka málinu fyrir EFTA-dómstólnum fyrst það er nú þangað komið?