158. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2026.

Sjávarfallaorka.

[15:00]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég get tekið undir með þeim þingmönnum sem hafa orðað þetta þannig að þetta sé spennandi umræða. Þetta er það, þetta er spennandi umræða. Við erum að horfa þarna á gífurlega orku sem er á ferðinni, raunverulega og bókstaflega. Uppspretta þessarar orku á sér rætur í djúpum og vindasömum lægðum á Atlantshafinu sem streyma þarna norður og austur eftir Atlantshafinu og eiga sér oft leið hérna yfir landið mörgum til ama. En í þessu er náttúrlega gífurleg orka fólgin og þarna er Golfstraumurinn hluti af þessu og ferðast hérna norðuraustur með hafinu. Auðvitað er þarna líka að verki aðdráttarafl tunglsins, þannig að þessi orka er mikil og gífurleg. Það voru nefndar þarna einhverjar teravattstölur sem ég náði kannski ekki alveg en þetta er auðsjáanlega gífurleg orka. Við verðum auðvitað að nýta tækifæri, ef nokkur möguleiki er á, til að vera með í þessari þróun. Ég tel að við ættum að nýta það þannig að við ættum að hefja frekari rannsóknir á umfangi og möguleikum á þessu sviði. Við eigum einnig að hafa þessa orku sem hluta af orkustefnu stjórnvalda. Við eigum þess þá heldur að tryggja stuðning við áframhaldandi þróun þessarar tækni sem þarna liggur að baki. Við eigum að taka frumkvæðið og leitast við að skara fram úr á þessu sviði, eins og raunin hefur verið um nýtingu jarðvarmans þar sem litið er til Íslendinga um reynslu og þekkingu um allan heim.

Ég vil þakka kærlega fyrir tækifærið til að taka þátt í þessari umræðu.