Sjávarfallaorka.
Virðulegi forseti. Það er að mörgu að huga þegar er farið í svona miklar rannsóknir en nú vitum við að fjörurnar okkar og landgrunnið eru fæðukistan okkar þannig að alltaf þarf að fara varlega. Ég er með hérna í fjórum liðum nokkra punkta sem ég skrifaði niður. Það kostar mikið að byggja virkjanir í sjó. Viðhald getur reynst dýrt vegna saltvatnstæringar og erfiðra veðurskilyrða. Það gæti verið hagkvæmara að nota fjármagnið í aðra endurnýjanlega orkukosti. Í öðru lagi gætu þær hugsanlega skaðað lífríki sjávar og þá er ég að hugsa um blessað grunnsævið okkar. Hverflar geta haft áhrif á fiska og önnur sjávardýr og framkvæmdir geta raskað búsvæðum sjávarlífvera. Það er sérstaklega mikilvægt á Íslandi þar sem sjávarútvegur er stór hluti af atvinnulífi landsins. Í þriðja lagi er ekki hægt að byggja hvar sem er. Það þarf mjög sterka sjávarstrauma til að framleiða næga orku. Þótt Ísland sé umlukið sjó eru ekki allir staðir hentugir til slíkra virkjana. Því gætu mögulegir virkjunarstaðir verið færri en við höldum. Í fjórða lagi er orkuframleiðslan mjög stöðug. Sjávarföll eru fyrirsjáanleg og raforkuframleiðsla sveiflast eftir stöðu sjávar. Sjávarfallavirkjun framleiðir ekki endilega raforku með fullum afköstum allan sólarhringinn. Þess vegna gæti þurft að styðjast við aðra orkugjafa eða orkugeymslu.