158. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2026.

Sjávarfallaorka.

[15:07]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir góða umræðu hér í dag. Ég held að það sé gagnlegt að velta fyrir okkur nýjum orkukostum og vakta vel það sem er að gerast í heiminum. Við njótum auðvitað góðs af því að hafa veðjað á orkugjafa sem hafa reynst gríðarlega hagkvæmir. Fyrir vikið búum við við einhvern mesta raforkukaupmátt í heiminum. En við þurfum líka að horfa til framtíðar. Við vitum að við erum langt komin með að nýta alla hagkvæmustu vatnsaflskostina, þ.e. þar sem verndargildi þeirra er ekki svo hátt að við séum tilbúin að nýta þá. Ég held að það sé lítill áhugi á því hér í þessum sal að fara að teppaleggja landið okkar með vindmyllum vegna þess að við viljum verja óbyggðu víðernin okkar þar sem við erum í algerlega einstakri stöðu á heimsvísu. Þess vegna er mikilvægt að horfa í kringum okkur og hafa opinn hug þegar kemur að nýjum orkukostum.

Annars vil ég segja varðandi það sem við ræðum hér í dag að ég held að boltinn sé svolítið enn þá hjá einkaaðilum og rannsakendum. Ég sé ekki endilega ástæðu til að taka sjávarfallaorku út fyrir sviga og setja af stað sérstaka vinnu við stefnumótun vegna hennar, ég sé ekki ástæðu til þess. Ég held að það sé ágætt að stjórnvöld temji sér ákveðið tæknihlutleysi en meðhöndli til að mynda umsóknir um rannsóknir og annað út frá hlutlægum viðmiðum og fagþekkingu. Annars hefur það ekki staðið á okkur að reyna að ryðja burt hindrunum þegar kemur að rannsóknum og nýtingu á nýjum orkukostum. Hér hefur verið rætt um rannsóknir utan netlaga. (Forseti hringir.) Þannig að ef það koma upp slíkar hindranir á veginum þá skal ég vera fyrstur manna til að ganga í það verk að aflétta þeim þegar það á sér málefnalegan grundvöll.

Ég hlakka til áframhaldandi umræðu og vöktunar á þessum orkukosti sem öðrum.