Sjálfkeyrandi bílar.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir að hefja þetta mál til umræðu hér á þingi. Þetta er í rauninni um margt áhugavert, að pæla í þessari þróun fram á við og þeirri miklu tækniþróun sem hefur orðið á þessum bifreiðum, sjálfkeyrandi bílum. Það skiptir rosalega miklu máli að mínu mati að rýna vel í hvaða kröfur eru gerðar til þeirra bíla sem eru sjálfkeyrandi og til þeirra aðstæðna sem þeir geta keyrt í.
Það er áhugavert að horfa til þess að Evrópusambandið er m.a. að vinna í mótun regluverks og þeirra tæknikrafna sem þar eru undir. Það eru ýmsir tæknihlutar sem ekki eru endilega fullnægjandi til að vera í þessum aðstæðum sem nauðsynlegt er að horfa til. Að mínu mati er þetta auðvitað rosalega stuttur tími til að ræða jafn mikilvægt og viðamikið mál. Það er ýmislegt sem þarf að hafa í huga og ef maður ræðir þessi mál á þeim forsendum að auka þægindi í umferð þá tel ég þetta vera sniðuga leið til þess að þróast áfram inn í. Ég held samt sem áður að sjálfvirkni í almenningssamgöngum geti reynst mun betur til að draga úr umferð og dreifa álagi. Þá skiptir auðvitað miklu máli hvernig það er gert. Það sem ég tel síðan mikilvægt að við gerum sem samfélag er að rýna í þessa lagalegu stöðu, hvaða lögum þarf að breyta og þá hvað er gert á alþjóðlegum vettvangi. Sú sérstaða sem blasir við okkur er auðvitað annars vegar árstíðabundin sveifla á veðurfari og hins vegar ástand vegakerfis sem ég held að þurfi að vera nokkuð gott til að taka við þessari tækninýjung. Það er auðvitað mikilvægt að við vinnum að því svo að þetta reynist farsælt inn í framtíðina.