Sjálfkeyrandi bílar.
Virðulegur forseti. Ég ætla kannski að grípa orðið þar sem hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson sleppti því, hann hafði trú á því að með þessari tækni væri kannski ekki þörf fyrir alla að eiga bíl. Ég er nokkuð sannfærður um annað. Ég er líka nokkuð sannfærður kapítalisti og ég held að þegar þessi tækni verður komin til sögunnar þá muni þeir sem framleiða þessi tæki keppa að því að koma þeim í hendur á hverju einasta mannsbarni á jörðinni. Þá munu börn keyra um á litlum krúttlegum rafbílum o.s.frv. Það er það sem markaðskerfið gerir alltaf, tekur alltaf tæknina og reynir að koma henni til allra sem hana geta notað. Ég er nokkuð sannfærður um að hluthafar í stærstu bílafyrirtækjum í heimi eru ekki núna á fundum að spyrja: Hvernig getum við minnkað framleiðslu á bílum og komið í veg fyrir að allir kaupi þá? heldur þveröfugt. Þeir eru að hugsa: Hvernig við getum nýtt þessa tækni til að selja fleiri bíla og dýrari bíla?
Það er rétt sem margir komu fram með að tækifærin í almenningssamgöngum eru auðvitað heilmikil og auðvitað eru sjálfkeyrandi lestir eitthvað sem hefur verið til síðan 1960 eða alla vega 1980, þannig að sú tækni er sannarlega til staðar. Og vel að merkja þá er ég ekki svartsýnismaður. Ég mun gleðjast yfir þessari tækni þegar hún kemur en við þurfum þó auðvitað að huga að því hvernig við látum hana vinna fyrir okkur. Það er stundum aðeins of mikið um það þegar ný tækni kemur að þá koma annaðhvort þingmenn eða ráðamenn eða aðrir saman og velta fyrir sér: Hvernig getum við nú gert lífið þægilegra fyrir þessa nýju tækni? Þegar bílar komu fyrst þá bjuggu menn til gangbrautarljós til þess að það væri ljóst hvenær gangandi vegfarandi mætti labba yfir götuna eða hvenær bíll væri í rétti til að keyra yfir götuna. Þá tókum við það skref og ákváðum að smíða lögin til að rýma fyrir þessari tækni sem er bíllinn. Ég vil að við tökum sjálfkeyrandi bílum fagnandi en ég vil líka að við hugsum: Hvað getur sjálfkeyrandi bíll gert fyrir okkur? Ekki hvernig við getum aðlagað allt okkar líf og regluverk með innviðum til að tryggja að hann komist sem best ferðar sinnar. En ef þetta er vel gert þá er sannarlega tækifæri til að bæta heiminn.