158. löggjafarþing — 19. fundur,  19. okt. 2026.

Sjálfkeyrandi bílar.

[15:03]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka góðar umræður. Eins og kom fram í henni og í minni ræðu þá hafa rannsóknir sem þegar hafa farið fram lagt góðan grunn að þekkingu okkar og tækifærum og áskorunum við sjálfvirkan akstur á Íslandi. Ég fékk góða spurningu frá hv. þm. Sigríði Á. Andersen um hvort við ættum að fara að gera eitthvað umfram önnur lönd. Ég held að í tækniinnleiðingum yfirhöfuð séum við oft að gera ýmislegt umfram önnur lönd og okkar heimshluti er svo sannarlega framarlega í því að innleiða nýja tækni. Við sjáum það t.d. í bankaviðskiptum hversu fljótt við tökum upp nýja tækni. Ég tel að Ísland sé að mörgu leyti mjög góður svona prufumarkaður eða „test“-markaður fyrir nýjar vörur, bæði varðandi vörur á fjármálamarkaði og annars staðar. Við erum einangrað land, lítil eyja, 400.000 manns, gríðarlega kröfuharður markaður þar sem auðvelt er að prófa nýja hluti. Ég tel að það kæmi vel til greina að skoða það varðandi sjálfkeyrandi bíla á ákveðnum svæðum, jafnvel á lítilli eyju sem heitir Heimaey, það kæmi vel til greina.

Ég tek þessari tækniþróun mjög fagnandi og þetta er svo sannarlega framtíðin og ég vil að við höldum áfram á þessari braut. Næsta skref í samræmi við tillögu Vegagerðarinnar er að draga þessa vinnu saman og ráðast í heildstæða stöðugreiningu á undirbúningi íslenska þjóðvegakerfisins fyrir aukna sjálfvirkni. Í þeirri greiningu verður byggt á fyrirliggjandi gögnum, erlendum rannsóknum líkt og finnska fimm þrepa flokkunarkerfinu og afmörkuðum vettvangsathugunum á völdum vegköflum. Ég mun beita mér fyrir þessu, svo sannarlega, en í ræðu hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur spurði hún hvort ég myndi beita mér fyrir að stuðla að aukinni sjálfvirkni og þá er þetta fyrsta skrefið, tel ég. Til þess að hægt sé að innleiða þessa tækni með öruggum hætti þurfum við að kortleggja stöðuna vel. Í þeirri greiningu verður sjónum einkum beint að fjórum lykilþáttum. Í fyrsta lagi vegmerkingum, skiltum og hönnun innviða. Metið verður hvort kröfur um sýnileika merkinga séu fullnægjandi fyrir sjálfvirkt kerfi. Í öðru lagi viðhaldi vega og vetrarþjónustu. Í þriðja lagi stafrænum vegagögnum og rauntímaupplýsingum. Í fjórða lagi fjarskiptum á þjóðvegum. — Er tíminn búinn? Niðurstöður þessarar greiningar munu færa okkur enn lengra áleiðis og við munum sannarlega geta nýtt þær í framhaldinu til hönnunar, útboðs og í viðhaldskröfum. Lykilatriði í vegferð okkar, bæði við mótun lagaramma og innviðauppbyggingu, (Forseti hringir.) er að vera jákvæð og opin fyrir nýjungum til þess að fylgja þessari þróun vel eftir sem á sér stað á alþjóðavettvangi. Við viljum ekki slaka á kröfum hvað varðar umferðaröryggi og við munum forgangsraða úrbótum á vegakerfinu til að tryggja sjálfkeyrandi bifreiðar.