Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Eftir að hæstv. utanríkisráðherra Viðreisnar mistókst algerlega að fylgja eftir sínu eina stefnumáli um aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur orðið vart við talsverða erfiðleika innan flokksins. Þingmaður sem sagði sig úr flokknum lýsti því nýverið að þetta áfall hefði reynst sumum þar innan borðs það þungt að þeir gætu hreinlega ekki sinnt vinnu sinni lengur. Maður þarf auðvitað ekki að hafa slíkar innherjaupplýsingar til að sjá það sem öllum er orðið ljóst, að hæstv. utanríkisráðherra er ekki treystandi til að gæta hagsmuna Íslands, allra síst gagnvart Evrópusambandinu. Í málum eins og bókun 35 neitar hún beinlínis að halda uppi vörnum landsins. Nei, geta ekki sinnt vinnunni — og hvað þýðir það?
Við getum tekið útlendingamálin sem Viðreisnarflokkurinn lofaði að ná einhverjum tökum á hér á kjörtímabilinu. Nú er svo komið að ekki aðeins neitar hæstv. dómsmálaráðherra að stíga hin nauðsynlegu skref til að tryggja hagsmuni okkar á því sviði, t.d. að loka hæliskerfinu og brottvísa þeim sem eiga ekki lengur að vera hérna. Nei, heldur gerist það með þau litlu skref sem hæstv. dómsmálaráðherra er þó tilbúin að stíga, að hæstv. utanríkisráðherra reynir þá að fara í hina áttina, eins og í furðumálinu fyrir jól að koma Schengen-landamærastjórn okkar í uppnám til að selja fleiri vegabréfsáritanir til fólks frá Afríku og Asíu — mál sem enginn skildi. Svona eru þær litlu breytingar sem hæstv. dómsmálaráðherra nær í gegn á einum stað, þær eru jafnaðar út með öðru verra máli á öðrum stað þar sem ný landamæraglufa er opnuð, einhvers konar pólitísk kolefnisjöfnun mætti segja.
En svona græðir utanríkisráðuneytið pening. Á endanum snýst þetta því miður oft um krónur og aura. Það virðist endalaust peningur til þegar kemur að utanríkisráðuneytinu, hvort sem það er í hinsegin samtök í Bandaríkjunum upp á 150 millj. kr., ESB-aktívista sem ráðnir eru inn án starfslýsingar svo að hleypur á öðrum tugi milljóna króna og á meðan sitja raunveruleg öryggis- og varnarmál landsins á hakanum í dómsmálaráðuneytinu. Lögreglumál og sérsveitarmál eru vanfjármögnuð og nú síðast er sagt frá því að það vanti 700 millj. kr. upp á landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli svo viðunandi sé. Þarna erum við raunverulega að tala um gæluverkefni á kostnað öryggis almennings í landinu, sem er vel að merkja frumskylda ríkisvaldsins. Eins og fyrrverandi hv. þingmaður Viðreisnar sagði, frú forseti, með leyfi yðar, þetta fólk er „ekki að performera af því að það er í áfalli“. Íslenskur almenningur á betra skilið.