158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[14:26]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna, sem ég tel þó að hefði verið tilefni til þess að hafa miklu lengri og kalla jafnvel eftir því að hæstv. ráðherra komi hér í aðra ræðu við þessa umræðu til þess að útskýra eitt og annað í þessu máli. Það hefur einmitt verið lagt til að þetta mál sé innleitt með svokallaðri tilvísunaraðferð sem felur það í sér að hinn venjulegi maður, og jafnvel hinn venjulegi alþingismaður, á voða erfitt með að átta sig á því í rauninni hvaða áhrif þetta mál hefur og um hvað það snýst. Mig langar í fyrsta lagi að spyrja hæstv. ráðherra hvort það liggi mjög mikið á þessu máli því að því hefur verið þjösnað í rauninni hálföfugu hérna í gegnum þingið með málsmeðferð í umhverfisnefnd og utanríkismálanefnd.

Svo langar mig líka að spyrja varðandi þessar reglugerðir sem hér er verið að vísa til: Eru þær reglugerðir óumdeildar og skýrar í Evrópurétti? Hefur ekki verið deilt um þessar reglugerðir og efni þeirra og inntak? Eða er það að við getum í raun áttað okkur á inntakinu með því að lesa þær? Er enginn ágreiningur uppi í Evrópusambandinu um inntak þessara reglna sem hér er verið að innleiða?