aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt innlegg. Mér fannst hún nú horfa fram hjá því að ég er vanur að tala mjög hratt þegar ég flyt framsögur en ég mun bara taka virkan þátt í þessari umræðu eins og eðlilegt er. Nú er það þannig að CBAM-reglugerðin tók þegar gildi innan Evrópusambandsins í maí 2023, reynslutímabil skráningar og upplýsingaöflunar í ESB stóð til loka ársins 2025 og salan á CBAM-vottorðum hefst núna 1. febrúar 2027. Þannig að kerfið er að koma að fullu til framkvæmda núna í febrúar 2027 og málið hefur verið nokkuð lengi í undirbúningi. Það hefur átt sér stað, að ég tel, nokkuð ítarlegt samráð, góð upplýsingagjöf og gott og gagnlegt samtal við aðila sem verða fyrir áhrifum af frumvarpinu. Ég tel að það skipti máli að klára málið núna fyrir jól þannig að (Forseti hringir.) íslensk stjórnvöld nái þessum markmiðum um einsleitt regluverk á við Evrópusambandið þegar þetta kerfi tekur að fullu gildi.