158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[14:31]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Kannski bara rétt, af því að ég náði ekki að koma inn á það áðan, að það er vissulega rétt að þetta er umdeilt regluverk. Það hefur verið deilt mjög harkalega um það innan Evrópusambandsins og það hafa þegar átt sér stað ákveðnar breytingar, t.d. með hliðsjón af Mario Draghi-skýrslunni til einföldunar, þannig að það séu færri innflutningsaðilar sem falla undir það, þannig að smærri fyrirtæki verði fyrir minni áhrifum.

Niðurstaðan hefur verið sú að þetta mál sé EES-tækt. Það var sérstaklega skoðað, og Norðmenn vildu kanna það sérstaklega, hvort forsendur væru fyrir því að taka reglugerðina upp á grundvelli bókunar 31 við EES-samninginn sem tekur til samstarfs á tilteknum sviðum utan fjórfrelsisins. Ísland studdi þá nálgun en ráðuneytið taldi að reglugerðin félli vel að þeim viðmiðum sem höfð eru til hliðsjónar við mat á EES-tæki. Þetta er einfaldlega það náskylt ETS-kerfinu og að einhverju leyti — það að fella inn svona prinsipp, varna kolefnisleka með þessum hætti, er líka forsenda þess að (Forseti hringir.) ETS-kerfið þjóni þeim markmiðum sem það á að þjóna. Þannig að þetta er gríðarlega mikilvægt mál, að ég tel, fyrir samkeppnishæfni iðnaðar í Evrópu og það gildir líka um (Forseti hringir.) þann íslenska útflutningsiðnað sem við flytjum til meginlandsins.