aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.
Virðulegi forseti. Ég var nú að vona að hv. þingmaður héldi kannski áfram, tæki þráðinn lengra varðandi stjórnarskrárbreytingar, en það er alveg rétt að CBAM-kerfið skapar ríkissjóði tekjur og slíkt mat kemur fram í greinargerð frumvarpsins. Ég held að þetta séu 350 milljónir árlega og ég hef tekið þann pól í hæðina að við eigum, þegar kemur að ETS-kerfinu, sem er auðvitað nátengt CBAM, að útdeila þessum fjármunum að einhverju leyti áfram til atvinnulífsins, til stuðnings við grænar lausnir. Við gerðum það í fyrsta skipti núna í fyrra með sérstöku kalli gegnum Loftslags- og orkusjóð þar sem við studdum stóriðjuna í að draga úr losun hjá sér. Ég geri ráð fyrir að það verði framhald á því þannig að við reynum að nota hluta af þessum fjármunum sem skila sér til íslenska ríkisins til að styðja við loftslagsvænar fjárfestingar í stóriðnaði. Ég geri ráð fyrir nýju slíku kalli í haust eða á næsta ári þar sem við erum að horfa til fjölnýtingar (Forseti hringir.) auðlindastrauma o.s.frv.