aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég tek undir með honum að þetta er auðvitað áhugavert um margt og ég held að það sé skynsamlegt fyrir ríkið alla vega að horfa á þetta með þeim augum að þessum fjármunum sem koma inn í tengslum við CBAM-kerfið verði skilað aftur til fyrirtækjanna. Ég held að það skipti miklu máli. Ég hef hvergi séð umsögn frá aðilum sem eru undir ETS-kerfinu um að þeir hafi yfirleitt nokkrar skoðanir á CBAM. Ég hefði nú haldið að það gæti verið alla vega skynsamlegt fyrir fyrirtæki að senda inn umsagnir í tengslum við það að hér er verið að skattleggja kolefni og skiptir auðvitað máli að það sé ekki mikið um kolefnisleka. Það þjónar alla vega hagsmunum okkar fyrirtækja hér á Íslandi sem eru í ETS-samningnum að það verði komið í veg fyrir kolefnisleka þannig að starfsemi færist ekki til þriðja lands.
En varðandi umsagnirnar langar mig að vita hvort hæstv. ráðherra viti til þess að einhver (Forseti hringir.) sem er í ETS hafi skilað inn jákvæðri umsögn.