158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[14:42]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fagna nálgun hv. þingmanns á þetta mál. Já, það komu svona þokkalega jákvæðar umsagnir, m.a. frá Elkem, frá Alcoa Fjarðaáli og frá Samáli. Í Samálsumsögninni var svo sem verið að hnýta í ákveðin atriði í CBAM-kerfinu sjálfu af því að það er ekkert hafið yfir gagnrýni og eins og með svo margt í EES-réttinum sætir þetta stöðugri endurskoðun. Það er alltaf verið að leita leiða til að bæta hlutina og m.a. tók þetta kerfi ákveðnum breytingum eftir skýrsluna hans Marios Draghis. En það er mikil meðvitund um það hjá stóriðnaði á Íslandi hvað það er mikilvægt fyrir íslenska útflutningshagsmuni að Ísland innleiði þetta kerfi og að það taki gildi hérna. Auðvitað þarf það að gerast á sama tíma og það kemur að fullu til framkvæmda annars staðar í Evrópu þannig að það er mikið í húfi þar og skilningur á því.